Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Púlkur
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. December, 2010 at 10:18 #474261108755689Member
Sælar
Ég, í félagi við fleiri, hygg á gönguskíðaævintýri á Vatnajökli um páskana. Er illa græjaður og er því farinn að huga að útbúnaði. Sá þetta á pressunni í dag. Hvað segja reynsluboltar? Myndi þetta virka sem púlka?
Svo rakst ég á þennan frábæra norska hjólavagn sem er hægt að breyta í púlku. Er þetta eitthvað sniðugt í hardkor jöklaskíðaferð?
Öll góð ráð vel þegin.
Svo vantar mig skíði og tilheyrandi ef einhver liggur á slíku.
Er 181 cm (og fáránlega myndarlegur) og nota skóstærð 43-44.
Bragiedit: hér er mynd af NordicCab í notkun.
16. December, 2010 at 13:06 #559512806763069MemberGuð minn góður, hvaða ormagryfju ertu búinn að opna núna.
16. December, 2010 at 13:41 #559521108755689Member…og hvort er betra að bíða af sér aftakaveður í snjóhúsi eða tjaldi?
Ívar…þú ert nú vanur maður í bransanum. Hvað er þitt take á púlkukontróversinu?
16. December, 2010 at 13:56 #559541506774169MemberLoksins er talað um eitthvað áhugavert hérna
Ég myndi nú segja að þetta sem glaðlegi norðmaðurinn á myndinni er með í eftirdragi væri fulllítið. En það fer lítið fyrir sölu á dráttarsleðum á íslandi og er það miður en einhver uppgangur er í gönguskíðamenningunni þessa dagana. Ég frétti af 120cm löngum púlkum sem fyrirtæki á Dalvík er að selja. Þeir eru með einhverja sleðatúra í Eyjafjörðinn austanverðann sem þeir nota þessa sleða í. Svo væri líka raunhæft fyrir 10-12 manns að taka sig saman og panta frá Rei t.d svona Paris sleða. Ættu ekki að vera of dýrir ef margir eru pantaðir. Annars held ég að þessir sleðar í tenglinum séu þessir frá Dalvík sem ég nefndi. Og þeir gætu alveg miðað við myndina gengið vel upp í svona verkefni.
N.b ég er sjálfur á leið í svona leiðangur um eða eftir páskaSlóð á Paris sleðana. Þeir eru mjög góðir og á góðu verði, úti amk.
http://www.rei.com/product/609482Ég hringdi í Kaldbaksferðir og þeir eru að selja þessa sleða á 9900 krónur og senda hvert á land sem er.
16. December, 2010 at 14:23 #55955KarlParticipantÞað segir sitt um ágæti púlkna, að þeir sem eru að þjálfa sig fyrir stórjöklagöngur hafa stundað að draga á eftir sér liggjandi hjólbarða í bandi.
Ef þú ætlar að æfa þig fyrir sleðadrátt er þér óhætt að hafa dekkin upprétt, láta þau snúast á legu, og tengja þau við þig með kjálkum svo þau taki ekki frammúr…..Hefur þú velt því fyrir þér hvort þú rennir hraðar niður Kaldbakinn á skíðum eða snjóþotu?
Góðar stundir
16. December, 2010 at 16:01 #559560304724629MemberÉg á nokkrar svona þunnar skeljar sem hægt væri að fá fyrir lítið. Virka fínt við klifurbelti og spotta þræddan í gegnum ragmagnsrör.
17. December, 2010 at 21:40 #55963Steinar Sig.MemberÞað er verst að það er ekki hægt að leita í gamla spjallinu. Einhver allengsti þráðurinn þar var ormagryfjan sem Ívar bendir á.
Gætir leigt parísarpúlku hjá Fjallaleiðsögumönnum ef þú vilt ekki eyða peningum eða geymsluplássi í púlku.
17. December, 2010 at 22:38 #559641108755689MemberHugsa að leiguleiðin verði niðurstaðan.
18. December, 2010 at 11:06 #55965KarlParticipantSteinar Sigurðsson wrote:
Quote:Það er verst að það er ekki hægt að leita í gamla spjallinu.Sást þú ekki leitarstrenginn hér að ofan? -Það er alsstaðar hægt að leita.
Minni á að ég á ennþá púlku úti í skúr. Hún stendur til boða hverjum þeim sem lofar að skila henni ekki aftur…
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.