- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
6. August, 2009 at 16:27 #47345BjörkParticipant
Sæl
Vil benda fólki á nýjan dagskrárlið, Reisugilli Tindfjallaskála.Þessu stóra verkefni er brátt að ljúka og mun skálinn halda til sín heima helgina 14-16 ágúst.
Við viljum af þessu tilefni hvetja alla félagsmenn að koma á Kirkjusand á þriðjudaginn og fagna þessum áfanga. Bera skálann augum og búa til tilhlökkun um að fara í skálann í vetur.
Vonandi mæta sem flestir.
kv. Björk
7. August, 2009 at 10:04 #54388KarlParticipantReisugilli?
-Er þetta nýbygging? Ég hélt að síðasta sperran hfði verið reist 1940!
9. August, 2009 at 23:07 #54391BjörkParticipanttja jú það er einhverjar nokkrar gamlar spítur enn;) Annars er næstum allt nýtt.
Reisugilli kannski ekki rétta orðið, en hvað um það. vonandi mæta Ísalparar á þriðjudaginn.
kv. Björk
10. August, 2009 at 08:58 #54393SissiModeratorTil að svara Kalla þá voru fæstar sperrurnar reistar 1945.
Sissi
10. August, 2009 at 17:07 #54395SissiModerator[img]http://3.bp.blogspot.com/_L59vJnr9c3E/STrPsxbzkJI/AAAAAAAAAoo/BD49ltFZJ2w/s1600/IMG_0199.JPG[/img]
Ég fyndinn. Góðar stundir.
12. August, 2009 at 10:10 #54403BjörkParticipantGillið heppnaðist mjög vel og ótrúlega gaman að sjá margar gamlar kempur mæta á svæðið
En um 60 manns létu sjá sig.
Hefði verið gaman að sjá fleiri af yngri kynslóðinni, en þau eru vonandi þar sem þau eiga að vera – á fjöllum!
Setti inn myndir undir fréttir.
kv. Björk
12. August, 2009 at 13:14 #544042806763069MemberVá, maður fær bara svona hlýja tilfinningu í magan af að sjá öll þessi gömlu andlit (sem ég þekki þó fæst, enda svo ungur). En það er líklega bara af því að ég er svo soft.
Annars lítur skálinn greinilega ótrúlega vel út. Eins og hjá öllum öðrum verður stefnan sett í Tindfjöll í vetur. Skálanefndin á stórt klapp á bakið skilið og miklu meira. Maður verður víst að lifa með þeirri skömm að hafa ekki lagt hönd á plóginn.
kv.
Softarinn.
12. August, 2009 at 14:17 #54405SkabbiParticipantHæ
Það var alveg ótrúlegt að sjá þanna fjölda gamalla Ísalpara og Fjallamanna sem mættu í gærkvöldi til að votta skálanum og þeim sem stóðu að þessari endurbyggingu virðingu sína. Meðalaldurinn á samkomunni hefur líklega verið nálægt sextugu. Loksins fékk maður að sjá þessa kappa í eigin persónu eftir að hafa lesið um ævintýri þeirra í gömlum ársitum.
Það er alveg á hreinu að samheldni og virðing eldri kynslóðanna fyrir skálanum og sögu hans er meiri en margur áttar sig á. Vonandi eykur þessi stórmerkilega framkvæmd áhuga nýrra kynslóða á skálanum, svæðinu og fjallamennsku yfir höfuð. Þeir sem stóðu að endurbyggingunni, skipulagningu hennar og framkvæmd eiga gríðarlegar þakkir skildar. Gutti yfirsmiður var heiðraður sérstaklega í gærkvöldi, enda hefur hann, að öðrum ólöstuðum, verið þungamiðjan í þessari framkvæmd.
Og Hardcore H þarf ekki að skammast sín lengi fyrir að hafa ekki lyft litlafingri á meðan þessari framkvæms stóð, hann getur unnið það allt upp þegar Bratti verður fluttur til byggða .
Allez!
Skabbi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.