Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hrútsfjall
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
25. April, 2011 at 12:26 #47338Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant
Jæja
Gerðu þið eitthvað skemmtilegt um páskana?
Við vorum 3 sem að nýttum okkur veðurgluggann á laugardaginn og skelltum okkur á Hrútfjallstinda. Ferðafélagarnir voru þeir Helgi Egils, djassgúru og Robin hinn Norski. Leiðin sem við fórum er hryggur sem liggur frá Svínafellsjökli og endar á Vesturtindi. Leiðin gefur klassísku leiðinni upp Suðurhlíðina ekkert eftir í gæðum. Við völdum okkur þægilegustu leiðina upp hrygginn því að við vorum í kapphlaupi við veðrið. Ferðin upp á topp tók um 8 og hálfan tíma frá bílastæðinu við Svínafellsjökul. Niðurleiðin tókum 3 tíma.
Myndir inni á agust.smugmug.com
Kv. Ági [img]https://www.isalp.is/media/kunena/attachments/legacy/images/P4230145.JPG[/img]
25. April, 2011 at 16:32 #56627SissiModeratorGlæsilegt, verður gaman að sjá myndir af þessu. Freysi og Hemmi fóru eitthvað svipað hérna um árið. Helvíti hafið þið verið röskir samt!
25. April, 2011 at 22:52 #566282806763069MemberSnöggir – já það er það sem við gerum ráð fyrir þegar ÍFLM gædar eru annars vegar!
Annars duglegir strákar!
26. April, 2011 at 12:47 #56631Bergur EinarssonParticipantVið bröltum tveir, ég og Jósef, upp NNV hrygginn á Lambatind á Ströndum nú um páskana. Skemtileg leið á flott fjall. Mjög svipaður fílingur og NA hryggurinn á Skessuhornið.
400-450 hæðarmetrar af 2. gráðu snjó og íshöftum, léttu klettabrölti og snjósyllum. Allt klifrað á hlaupandi tryggingum.
Ari Trausti minnist á bók sinni 151 tindur að a.m.k. tvær ís/snjólænur hafi verið farnar á Tindindinn en það væri gaman að vita hvaða leiðir menn hafa verið að fara þarna. Flott fjall og fjöldinn allur af möguleikum á skemtilegum leiðum. Sama má líka eiginlega segja um öll hin fjöllin þarna í kring.
Myndir komast vonandi á netið við tækifæri.
Kveðja,
Bergur
26. April, 2011 at 18:52 #56633Gummi StParticipantGaman að heyra af þessu Bergur, ég hef lengi ætlað að fara þarna upp einhverja lænuna á Lambatind, hlakka til að sjá myndir og ekki væri verra ef þið eigið “yfirlits” mynd sem sýnir leiðina.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.