- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
22. November, 2010 at 12:24 #471970303824399Member
Vorum tveir félagar að ganga niður hryggin við Ýmu núna á sunnudaginn þegar hávær hvellur heyrðist og 20-30m snjófleki fór af stað rétt fyrir neðan okkur. Nokkrar sprungur mynduðust einnig ofarlega þar sem við gengum en sem betur fer fór sá snjór ekki af stað. En til þeirra sem plana að fara þangað á næstunni er mikilvægt að hafa í huga að efri flekinn er ennþá óstöðugur og gæti losnað. Mynd fylgir með. kær kv.
22. November, 2010 at 12:40 #55832BjörkParticipantGott að allt fór vel.
Endilega skrá snjóflóðið á vef veðurstofunnar:
http://www.vedurstofan.is/ofanflod/skraning/
kv. Björk
22. November, 2010 at 20:15 #558340801667969MemberHaldið þið að þið hafið átt þátt í koma þessu af stað? Hvernig voru snjóalög og göngufæri? Framan af laugardegi þá var rigning á láglendi þarna, létti svo til seinni partinn.
Þetta virðist myndarlegasta snjóflóð. Samt lítið miðað við þau ógnarflóð sem verða norðan til í Ýmu. Það eru stærstu flóð sem ég hef séð.
Kv. Árni Alf.
22. November, 2010 at 21:16 #55835SissiModeratorEr það virkilega? Áttu myndir af einhverju svoleiðis Árni? Eða aðrir?
22. November, 2010 at 23:03 #558360303824399MemberJú, við komum flóðinu af stað. Það var tiltölulega meiri snjór á suðurhlíðinni í Ýmu miðað við annarsstaðar en víða var harðfenni og snjórinn mest í sköflum oní sprungunum í jöklinum eftir hvassviðrið á laugardaginn. Á myndinni sést hvernig förin skera efstu sprungurnar í snjónum.
[img]http://www.isalp.net/media/kunena/attachments/legacy/images/DSC02088.JPG[/img]
22. November, 2010 at 23:26 #558370801667969MemberÁhugaverð mynd þarna frá Birgi. Eins gott að vanda leiðarvalið.
Hef nú bara átt leið norðan við Ýmu í Suðurjöklatúrum. Man að 1983 þá hafði gríðarmikið flóð farið yfir hálfan skriðjökulinn og flóðtungan endaði í háum keilum. Kannski ég eigi slides myndir frá 1991 túrnum. Annars er eitthvað farið að renna saman og fenna yfir eitthvað af þessu. Kannski ástæða til að reyna að vinna á hinu ógnvekjandi slides safni mínu. Ámóta scary að lenda í því eins og snjóflóði.
Kv. Slidarinn
22. November, 2010 at 23:55 #55838SissiModeratorHehe, ok.
Já, gott að þið voruð að vanda ykkur stŕákar, þetta virðist hafa verið frekar þétt og nasty.
23. November, 2010 at 08:45 #558390304724629MemberHvar á landinu er þetta? Snjóflóðavaktin vill færa þetta til bókar.
rok
23. November, 2010 at 11:17 #558410303824399MemberÝmir og Ýma eru í Tindfjöllum, magnað útivistarsvæði ekki talandi um að Ísálp á þar glæsilegann skála. Ég var búinn að skrá flóðið hjá veðurstofunni, fannst samt að eitthvað virkaði ekki, tjékkaðu á því fyrir mig. kv.
23. November, 2010 at 13:25 #558421001813049MemberÉg var líka að reyna að skrá snjóflóð sem féll í Hlíðarfjalli í síðustu viku.
Það var eins og þetta væri eitthvað bilað þegar maður ýtir á senda takkann.23. November, 2010 at 14:56 #558430304724629MemberHægt er að senda snjóflóðaskráningar undir þessum hlekk.
http://vedur.is/um-vi/hafa-samband/
Skráningarformið var eitthvað bilað en þetta er redding þangað til annað tekur við. Stefnt að því um áramótin.
23. November, 2010 at 14:59 #558440304724629MemberEitt í viðbót Kristinn. Gott ef þú gætir sent mér bara beint uppl. um þetta flóð í Hlíðarfjalli. runar@vedur.is
Getur reyndar verið að við séum komnir með það á skrá.
kv
rok23. November, 2010 at 20:04 #558460801667969MemberVar að enda við að tala við glöggan mann sem staddur var í Húsadal inn á Þórsmörk þennan dag. Skyggni var víst með afbrigðum gott. Þannig tóku menn strax eftir þegar flóðið féll eða var nýfallið. Það er ekki á hverjum degi svona gott veður og skyggni.
Kv. Árni Alf.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.