Jæja góðir hálsar.
Þá er ritnefndin skriðin úr híði og ætlar að koma ársritinu í prent innan skamms.
Nú er því lokaséns til að bæta við kommentum í annálinn okkar, sem er ein helsta söguheimildin um fjallaafrek, hér á landi í það minnsta.
Ef þið lumið á upplýsingum um fréttnæman túr til útlanda eða einhverja sögulega ferð eða leið hérlendis, þá er um að gera að drita því á ritnefnd(hjá)isalp.is (held ég að það sé).
Enga feimni eða lítillæti…
Það þarf ekki að vera um 8000m fjöll, WI7 eða 5.15 til að eiga heima í annál.