- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
29. June, 2007 at 13:21 #46790AnonymousInactive
Sælir félagar!
Stefnan er á Kverkfjöll þessa helgina og taka einn góðan hring þar, síðan ef verður og færð leyfir á Bárðarbungu og kannski fleira. Í þetta skipti hef ég góða félaga með mér þannig að ég þarf ekki að labba einn eins og í Esjufjöllum og Mávabyggðum.
Laugardaginn 7 júlí ætla ég ásamt fjölmörgum öðrum að ganga Glerárdalshringinn. Ef einhverjir ÍSALP félagar hafa áhuga á þessari stórskemmtilegu göngu geta þeir skráð sig á http://www.glerardalur.is Þetta er eini hringurinn (svo ég viti) þar sem hægt er að komast á 11 toppa yfir 1400m í einu. Í fyrra var hreint út sagt ótrúlegt veður þrátt fyrir slaka spá.Fjallakveðjur Olli
29. June, 2007 at 15:09 #51557Páll SveinssonParticipantSkreppa á Bárðarbungu!!! Rölta Glerárdalshringinn!!!
Ég verð bara þreittur á að lesa þetta.
kv.
Palli30. June, 2007 at 00:51 #51558Gummi StParticipanthehe… já það er glerárdalshringurinn !!
2. July, 2007 at 09:30 #51559Páll SveinssonParticipantHann er ótrúlegur kallin.
Ég er nú bara stoltur af að þekkja hann.http://www.utivera.is/100haestu
kv.
Palli3. July, 2007 at 18:41 #51560AnonymousInactiveTakk fyrir hlý orð!
Þá eru Kverkfjöll afgreidd ásamt Bárðarbungu, Kistufelli og Trölladyngju í aldeilis frábæru verði og með frábærum ferðafélögum.
Ég ætla að halda mig á Akureyri þessa viku og lofa skrokknum að jafna sig. Það er ekki laust við að maður finni fyrir þessum 110 km sem maður er búinn að þramma.
Næst á dagskrá verður hinn magnaði Glerárdalshringur sem ég hlakka mikið til. Veðurspá er sögð góð og mjög margir búnir að skrá sig til þáttöku. Svona þegar á seinni helminginn á verkefninu er komið fer maður að vona að þetta takist á árinu en þetta er ekki í hendi fyrr en síðasti toppurinn verður sigraður. Ég ætla bara að verða svo bjartsýnn að vona að skrokkurinn haldi.
Fjallakveðja Olli4. July, 2007 at 00:32 #51561Gummi StParticipantOlli þú getur þetta, við höfum allir hér trú á þér enda engin venjulegur maður á ferð!
Sjáumst vonandi hressir í Glerárdalshringnum!kv. Gummi St.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.