- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
7. April, 2009 at 18:14 #467760801667969Member
Kom að Kalla Ingólfs hálf slagandi við Þríhnjúkagatið í gær. Í klofið hafði hann hengt stóreflis rafstöð og utan á honum héngu tveir fullvaxnir ljósastaurakúplar. Kappinn stóð nú varla undan þunganum þarna á brúninni.
Ekki var Kallinn fyrr horfin fram af brúninni (með Benzann sinn í eftirdragi) en heilmikil óhljóð og drunur heyrðust úr iðrum jarðar. Auðvitað stóðst hann ekki mátið og trekkti rafstöðina strax í gang. Þarna var því eitt stærsta vasaljós í heimi að fara ofan í næst stærstu hraunhvelfingu í heimi.
Það verður ekki annað sagt en Karl Ingólfsson sé vel upplýstur.
Kv. Árni Alf.
8. April, 2009 at 09:59 #540780503664729ParticipantMenn fara misvel búnir þarna niður. Ef ég man rétt þá var ónefndum manni slakað niður um árið. Sá var ekki fyllilega meðvitaður um það hvað væri í gangi en hafði þó viskýpela í nesti.
Kom Karl aftur upp? Spurning um að ná í Benzann til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll ef eigandinn er á botninum.
8. April, 2009 at 11:17 #54079KarlParticipantÉg val halaður upp aftur ásamt fylgifiskum.
Það var gaman að vera þarna svona vel upp lýstur.Ég held að það sé gráupplagt að stofna þarna “Bankahvelfingu” þar sem koma má fyrir helstu efnahagsterroristum þjóðarinnar, 33 menningunum umtöluðu ásamt ráðherraliði sl 15 ára.
Það má koma fyir nokkrum myndavélum og sjónvarpa raunveruleikanaum eins og hann er í sinni hráslagalegustu mynd.
Það er ábyggilega mjög myndrænt að sjá líðið bítast um kindaskrokka sem kasta má niður um opið á tyllidögum……8. April, 2009 at 11:44 #54080ÖddiParticipantÉg greiði atkvæði með tillögu síðasta ræðumanns….
8. April, 2009 at 21:17 #54081AnonymousInactiveÉg legg til að þetta verði gert og að viðkomandi terroristar geti greitt fyrir það að komast upp úr holunni með greiðslu sem nemur á milli 3-5 hundruð milljörðum króna.
9. April, 2009 at 05:05 #540820703784699MemberÉg bíð eftir að rúllustigi nái niður í opið….búinn að fá mig fullsaddann af júmmi.
En hvernig stendur annars málið með stigann þarna niður?
10. April, 2009 at 22:04 #54083KarlParticipantÞað hefur verið sagt um suma að þeir stælu öllu steini léttara.
Þetta á ekki við um Árna Jonsen; -hann stal grjótinu líka.
Hann bar upp það merka erindi á Þingi í vetur að sletta eins og einum milljarði af almannafé í Þríhnjúkagatið.Hér má sjá hvað fæst fyrir þrjár millur af opinberu fé sem rann til félagsins Þríhnjúka ehf sem er í eigu amk tveggja ísalpara.
Ég veit ekki hvernig áhugi steinaþjófsins er til kominn en hugsanlega er það tengingin við svartol, grjót og ginninguagöp….
Sjálfum finnst mér nærtækara að setja rúllustiga í Stardalinn.
12. April, 2009 at 07:31 #540840801667969MemberÞað stefnir sem sagt allt í nokkurs konar “Jail House” rokk þarna í framtíðinni.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.