- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. December, 2008 at 13:34 #46741SkabbiParticipant
Hæ
Eftir hlákuskotið í gær er aftur farið að kólna. Veðurspáin gerir ráð fyrir frosti langt fram yfir helgi og snjókomu fram á laugardag.
Ísaðstæður og snjóalög voru prýðileg í byrjun vikunnar, smá hláka hefur bara hreinsað snjó úr ísleiðum og þjappað snjó í skíðaleiðum. Það má því gera ráð fyrir þokkalegu skíða og klifurfæri á laugardaginn þegar jóla klifur/skíðadagur Ísalp fer fram.
Ég hvet alla sem vilja auka á jólastemminguna á aðventuna til að taka þátt í þessum guðdómlega viðburði og skrá sig hér á síðunni.
Tekið verður á móti klifrurum og skíðurum með ólgandi sviðapitsum og rjúkandi landaglöggi í Skútuvoginum um kvöldið. Og þó að menn séu fastir í laufabrauðsskurði, sörubakstri og músastigaföndri yfir daginn er guðvelkomið að mæta um kvöldið, drekka í sig svaðilsögurnar og japla á nokkrum piparkökum.
Allez!
Skabbi
11. December, 2008 at 17:34 #53353Freyr IngiParticipantVei!
F.
11. December, 2008 at 23:56 #533540808794749Memberþað má vart líta af skjánum eða glugganum og veðrið og spáin hafa breyst.
nú lítur út fyrir að snjóa muni til laugardags.
skíðiskíðiskíði fyrir mig
ætla leggja höfuð í bleyti og sjá hvort ég fái mega góða hugmynd af skíðaleiðum.
hvað eru aðrir skíðamenn að hugsa. einhver sem veit um öruggan skafl?12. December, 2008 at 13:12 #53355gulliParticipantHvenær er mæting eiginlega????
12. December, 2008 at 13:59 #533562704735479MemberTindfjöll -hlýtur að vera snjór þar -er það ekki?
12. December, 2008 at 14:35 #53357GoliMemberHeyrðu ég gæti verið meira en til í skíðun, lát heyra ef þið komið upp með plan!
Góli s: 617-6924
12. December, 2008 at 14:53 #53358Páll SveinssonParticipantÉg sé Grafarfossinn út um gluggan í vinnuni hjá mér.
Þrátt fyrir ótrúlegar umhleypingar undanfarina daga þá virðist hann vera í fínum aðstæðum.ps.
Palli12. December, 2008 at 15:42 #53359SkabbiParticipantHæ
Klifrarar stefna á Múlafjallið í fyrramálið, enda er það eini staðurinn sem tekur við þeim geigvænlega fjölda sem búist er við í viðburðinn.
!zellA
SKabbi
12. December, 2008 at 16:57 #53360Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantSmá rapport hérna.
Ég skrapp í bíltúr áðan upp í Hvalstöð. Aðstæður eftir hlákuna eru svona lala.
Það var mikill snjór utan á klettunum þannig að erfitt var að greina ís úr mikilli fjarlægð.
Smá ís í búhömrum. 55° klifranlegar að öllum líkindum.
Sá ekkert inn í Eilífsdal vegna snjókomu. Ætti að vera í fínum málum þrátt fyrir stuttan hitakafla.
Ekkert að gerast í Ýring, Óríon ennþá feitur. Lítið í Flugugili.
Smávegis af ís í Múlafjalli, sá ekki Stíganda en Rísandi ætti að vera vera klifranlegur þó að mjór sé. Ábyggilega mjög skemmtilegar mix-aðstæður.
(Birt án ábyrgðar (eins og lottótölurnar:) )
Þannig er nú það.
Góða skemmtun í klifrinu á morgun. Sjáumst í glögginu.
Ági
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.