- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
25. July, 2008 at 08:59 #466751908803629Participant
Sumarið hjá mér hefur einkennst frekar mikið af ekki-svo-mikið-harðkjarna þar sem fjallgöngur hafa verið í hávegum höfð og ég reynt að fara á nýtt fjall í hverri viku. Þá styttri fjallgöngur eftir vinnu. Nú er ég kominn í smá þurrð með val á fjöllum/leiðum og datt því að starta hér, að ég held, áhugaverðum þræði.
Hvaða fjallganga/göngur á Íslandi er/u í mestu uppáhaldi hjá þér?
Þó að Ísalp sé meira fyrir harðkjarna umræður þá held ég að við eigum það öll sameiginlegt að fara í fjallgöngur og því gæti þessi þráður orðið kjarngóður og skemmtilegur og hvatt okkur til að rannsaka fjöllin frekar.
Ef ég á að velja eina leið held ég að ég velji göngu upp á Mósskarðshnjúka og síðan göngu yfir alla Esjuna með niðurgöngu við Þverfellshorn. Fór þar fyrir nokkrum árum og hafði mjög gaman af, þá sérstaklega fyrri hlutanum, hjá Móskarði, Laufskarði, Hátindi etc þar sem útsýni niður gilin tvö, í allar áttir, er frábært í góðu verði. Því er eflaust hægt að taka styttri göngu þar en alveg jafn skemmtilega.
Þannig að þetta er tilraun til að starta vinsælasta þræði sumarsins… Svo er bara að sjá hvort það takist.
25. July, 2008 at 11:00 #52935Arnar JónssonParticipantVar að koma til baka eftir að hafa farið fjölskyldu ferð hringinn í kringum landið. Úff hvað það eru flott fjöll þarna fyrir austan. Það var svo sannalega erfit að keyra þarna framhjá Snæfelli, Dyrfjöllum og Herðubreiðinni og fleirri og ekki fara á neitt þeirra. En nóg um það ef ég verð að velja eitthvað þá mundi ég segja að mitt uppáhalds fjall sé Hrútfellstindar, gríðalega flott og skemmtilegt í uppgöngu. Þó ef við erum að tala um minni fjöllin þá er Vífilfell og jú Móskarðhnjúkarnir alltaf skemmtilegir þegar maður vill fara í styttri túra.
Kv.
Arnar25. July, 2008 at 15:45 #529362806763069MemberSkarðatindur
kv.
Hardcore25. July, 2008 at 16:18 #529372704735479MemberKristínartindar
: )
25. July, 2008 at 18:12 #529382005774349MemberHelgafell
) :
25. July, 2008 at 23:20 #52939SmáriParticipantHlöðufell, þar má segja að minn fjallamennsku”ferill” hafi byrjað eftir blauta og kalda nótt á fjallinu.
26. July, 2008 at 20:20 #52940AnonymousInactiveÞað eru til ótrúlega mörg falleg og skemmtileg fjöll á Íslandi. Ég á erfitt með að segja til um það hvað sé það besta og flottasta en það fjall sem ég lenti í einu skemmtilegasta útsýni á var Þuríðartindur. Svo eru fjöll eins og Herðubreið, Snæfell, Jörvi, og svo framvegis.
Olli27. July, 2008 at 10:45 #52941Páll SveinssonParticipantÞað er leiðin frekar en fjallið sem er í uppáhaldi.
Ef við teljum fjölda uppferða þá er það Esjan og svo Skarðsheiðin.
Kv.
Palli27. July, 2008 at 12:24 #52942AnonymousInactiveÉg hugsa nú að ég hafi komið oftar á Hvannadalshnjúk heldur en Esjuna!!!
Olli27. July, 2008 at 20:04 #52943KarlParticipantÞjóðarfjallið Herðubreið.
-Flottasta skíðabrekkan27. July, 2008 at 22:50 #529441704704009MemberHáasúla þröngvaði sér inn í hugann. Nú langar mig allt í einu að fara þangað.
Þú ert nú meiri kallinn Ágúst að æsa þetta svona uppí manni.28. July, 2008 at 09:19 #529451108755689MemberTalandi um Móskarðshnjúka – Þverfellshorn. Ég átti leið þar um vorið 2005 í blííííííðskaparveðri mestmegnis. Skemmtileg leið að labba og tók mig um 6 klukkustundir á rólegheita lötri (ef ég man rétt).
Þegar ég nálgaðist Þverfellshornið skall á svartaþoka svo þykk að minnstu munaði að ég héldi framhjá kringsjánni og niðurgönguleiðinni minni. Heyrði óm af mannamáli sem kom mér á rétta braut.
Tók nokkrar myndir þann daginn.
http://public.fotki.com/bragiogeyglo/ferdalog/mskarshnjkarverfell/28. July, 2008 at 15:16 #529460111823999MemberMér þykir alltaf vænt um Akrafjallið
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.