Hæ
Vek aftur athygli á því að Ísalp stendur fyrir klifurferð í Gerðuberg á Snæfellsnesi næstkomandi fimmtudag, Uppstigningardag.
Veðurspáin er hreint löðrandi góð þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu að menn geti átt firnagóðan klifurdag á mögnuðu svæði.
Þeir sem hafa áhuga ættu endilega að skrá sig hér á síðunni. Einnig má senda undirrituðum póst á skabbi(hjá)gmail.com með frekari fyrirspurnir.
Allez!
Skabbi