Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › klifurveggurinn í Björk
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
9. April, 2005 at 16:39 #466031908803629Participant
Ég er nokkurn vegin nýliði í klifurbransanum og sæki klifurhúsið nokkuð grimmt. Endrum og eins kíki ég í Björk til að komast í smá top rope og til að leiða – til að æfa mig fyrir sumarið.
Það sem mér finnst skrítið er að oftast er ég, og félagi minn, sá eini að klifra á veggnum. Ef það er einhver þá eru það einhverjir krakkar sem vita lítið hvað þeir eru að gera þarna.
Og nú spyr ég, hvert fara klifrarnir þegar þeir vilja komast í top rope og að leiða yfir vetrarmánuðina? Er það kannski málið að þið látið ykkur nægja að fara í boulder eða eruð þið eitthvað á móti Björk? Eða tekst ykkur að kmast í veggi hjá hjálparsveitunum eða annars staðar?
Ég geri mér vel grein fyrir því að Björk mætti gera margt betur en fyrir mig eru aðrir kostir ekki í boði vilji maður komast í stærri veggi… eða hvað?
Endilega baunið út úr ykkur skoðanir um þetta
kv. Ágúst Kr.
9. April, 2005 at 18:35 #496422005774349MemberInniveggurinn hjá Björkunum er mjög fínn.
Og ég efast um að nokkur hafi eitthvað á móti honum (allavega ekki ég).
Klifurhúsið hefur átt í mjög fínu samstarfi við Bjarkirnar og við höfum farið þangað með námskeiðin okkar til þess að leyfa þeim að prófa klifur í línu.Hinsvegar er enginn veggur á Íslandi enn sem komið er sem býður uppá alvöru aðstöðu til þess að klifra í línu (12-15 m háa veggi).
Þannig að flestir sem æfa, æfa stíft í Klifurhúsinu en kíkja svo endrum og eins í Bjarkarvegginn eða lauma sér inn með einhverjum hjá HSSR til þess að halda hæðargírnum í lagi.
Síðan eru alltaf einhverjir sem skella sér til útlanda í klifur þegar skammdegið ríkir á Íslandi ; )Ég held að bestu klifuræfinguna megi fá með því að glíma sem mest við innigrjót yfir veturinn og skreppa svo endrum og eins til þess að fá smá fjölbreytni í hærri veggi.
Þetta er mín skoðun,
Hjalti Rafn.
9. April, 2005 at 19:08 #496431210853809MemberSíðasta vetur þá æfði ég bara í bjarkarveggnum og lét það alveg nægja mér. En eftir þann vetur hafði ég fengið algjört ógeð á því að klifra sömu leiðirnar aftur og aftur og aftur og aftur…..! Þannig að ég fór í klifurhúsið í haust og sé ekki eftir því.
En svona með vorinu er ég byrjaður að kíkja aðeins upp í björk og leiða aðeins og koma manni þannig aðeins í gírinn fyrir sumarið.
Þetta allavega finnst mér ágætt, svo veit ég ekki hvað öðrum finnst. Ég veit bara um tvo aðra veggi en í björk og það er HSSR vegurinn og flubbaveggurinn.kv, Jósef
11. April, 2005 at 13:11 #49644Siggi TommiParticipantMaður þarf nú ekki alltaf að klifra merktu leiðirnar, hvorki í Björk né KH.
Um að gera að hafa hugmyndaflugið í lagi og mixa sínar eigin leiðir til að draga úr einhæfni og til að búa til verkefni sem henta viðkomandi (gripin þurfa ekki endilega að vera með límmiða eða vera í sama lit öll).
Og svo ekki vera hrædd/ur við að detta. Læra að treysta þessu spottadóti því helmingurinn af þessu klifri er bara í hausnum á manni…Klifurkveðjur
HSSR og KH klifrari nýkominn úr massaklifri í sólbökuðu Frakklandi…11. April, 2005 at 14:39 #496450311783479Membersiggi ertu með einhverjar myndir frá reisunni?
-halli
11. April, 2005 at 14:49 #49646RobbiParticipantNóg af myndum, þrjár digitalvélar voru með í för og komu heim smekkfullar af myndum. Erum að vinna í því að setja e-ð skemmtilegt saman. Myndir og ferðasaga væntanleg…
Robertino12. April, 2005 at 10:18 #49647Siggi TommiParticipantKyrfilega!
12. April, 2005 at 18:09 #496480702892889MemberAlveg satt sem þú segir siggi tommi, en hinsvegar er það nú raunin að maður fær ógeð á að vera þarna samt sem áður, þarna eru litlar stelpur að æfa fimleika, flestar að æfa einhverjar dansrútínur og músíkin sem er skelfileg, er síendurtekin, trekk í trekk þangað til maður er alveg að flippa út.
Hefur líka borið á töluverðum móral þarna:( því miðurkv.andri
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.