Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Villingadalur og fleira
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. January, 2004 at 19:36 #46146ABParticipant
Ég, Olli og Torbjörn sænski fórum í dag og klifruðum í Villingadal. Aðstæður þar voru ágætar, nægur ís í leiðunum þremur en ísinn var oft hulinn frauði og snjó. Múlafjallið er í fínum aðstæðum en Brynjudalur ekki eins vel, t.d. er Óríon ekki í aðstæðum. Annars mun Steppo gera betur grein fyrir þessu, en hann fór í bíltúr í dag.
Á leiðinni heim úr Villingadalnum, efst á Geldingadraga fór bíllinn útaf hjá okkur og fór tvær veltur. Torbjörn var við stýrið og brást rétt við og reyndi að stýra bílnum í stað þess að hemla en allt kom fyrir ekki. Bílinn er sennilega ónýtur en við sluppum ómeiddir fyrir utan skrámur og smá bólgur. Gríðar hálka var á þessum slóðum.
Maður fer orðið ekki í klifurferð án þess að þurfa að hringja í neyðarlínuna, þetta fer að verða frekar þreytt.
Allir voru í beltum og bjargaði það okkur frá stórslysi og dauða.Annars bara hress,
Kv, Andri
12. January, 2004 at 00:43 #48279JokullMemberGott að allir eru heilir og mundu bara að fara varlega en ávallt djarflega.
Baráttu kveðjur frá Ameríku deild ISALPJökull
12. January, 2004 at 15:01 #482802806763069MemberTja, maður fer nú að hugsa sig tvisar um áður en maður fer að klifra aftur með Andra, sérstakega í ljósi þess fornkveðna að allt er þegar þrennt er! Og það eru bara tvö búin í þessari hrinu. Eða eru það tveir skemmdir bílar og einn eftir?
Í öllu falli er ekki lognmolla þennan veturinn þó klifurafrek séu enn ekki farin að sjást.
12. January, 2004 at 20:41 #48281AnonymousInactiveÉg mundi ekki hugsa mig tvisvar um. Ég mundi fara að klifra strax á morgun með Andra ef það stæði til boða. Hann er mjög traustur klifrari og fagmanlegur í alla staði. Klifuraðstæður eru allar að koma til og hafa menn hreinlega enga afsökun að fara ekki. Með klifurkveðum
Olli -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.