Super Dupont endurtekin á Gamlársdag

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Super Dupont endurtekin á Gamlársdag

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45829
    Siggi Tommi
    Participant

    Sælinú

    Þrír fræknir bramboltarar staddir á Eyjafjarðarsvæðinu endurtóku 60m WI5 leiðina Super Dupont í Stólnum í Skíðadal á Gamlárdag.
    Leiðin er beint ofan við bæinn Dæli (ysta bæ í dalnum) og var fyrst farin af Jökli Bergmann og Ásmundi Ívarssyni árið 1994. Reynt hefur verið við endurtekninguna alla vega þrisvar áður en orðið frá að hörfa í öll skiptin (svo vitað sé).
    Leiðin fer því beint á klassíska listann… :)

    Seinni partinn var svo farin ný leið um 1km innar í Stólnum. Er hún WI5- (ish) um 40m og fékk vinnuheitið Gamlárspartý. Er því farið að þynnast í fjölda augljósra leiða í Stólnum og kominn tími á mini-tópó af svæðinu.

    Nóg af ís er á þessu svæði enda leiðirnar í 400-600m hæð og því lítið orðið fyrir áhrifum af hlákunni. Alpaleiðirnar í Búrfellshyrnu í Svarfaðardal eru líka í myljandi aðstæðum.

    Góður dagur á fjöllum!

    Sjá annars myndir á:
    http://picasaweb.google.com/hraundrangi/SkAdalurGamlRsdag#

    Í förinni voru: Sigurður Tómas, Freyr formaður og Jökull Bergmann

    #53502
    Skabbi
    Participant

    Oj

    Djöfull eruði glataðir gaurar…

    Djöfull er glatað veður fyrir sunnan…

    Kúkakveðja

    Skabbi :-þ

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.