Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Kannast einhver við kallinn?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
10. June, 2008 at 11:27 #45612SkabbiParticipant
Hæ
Mér var bent á þessa flottu mynd á víðáttum internetsins. “Climber scaling an icy pitch in Iceland”.
http://imagesource5d.allposters.com/watermarker/13-1385-F76P000Z.jpg
Væri gaman að vita hvað björgunarsveitamógúll er þarna á ferð.
Sjáumst í kvöld.
Skabbi
10. June, 2008 at 11:42 #528460808794749MemberTalandi um víðáttur…
Væntanlega mæta leiðangursmenn frá þessu fyrirtæki líka í kvöld.
Frekar flottar ferðir sem þeir eru að skipuleggja á fáfarnar slóðir.
Þeir voru á sömu slóðum og Pólverjarnir.10. June, 2008 at 12:11 #52847SissiModeratorLúkkar eins og HSSR merki, Palli Sveins eða einhver af Everest köppunum?
10. June, 2008 at 14:52 #52848RobbiParticipantÉg veðja á að þetta sé Palli. Ætla líka að gerast svo djarfur að skjóta á að þetta sé Þráin í Þjórsárdal.
robbi
10. June, 2008 at 15:28 #52849AnonymousInactiveÉg get ekki skrifað upp á að þetta sé Þráin í Þjórsárdal. Ég kannast ekki við að Palli eigi svona stakk. Þetta lítur ekki út eins og miðsvæðið í Þránni þó svo að það séu talsverð líkindi. Þetta dót lengst til vinstri á myndinni er eitthvað sem ég kannast ekki við.
Kveðja Olli10. June, 2008 at 16:00 #528502806763069MemberOlli, hver ykkar á grænar Pyrana axir? – Palli hefur alltaf verið meira fyrir bleikt þannig að þetta er varla hann!
Ég giska á Glymsgil og Tómma Grönvald!
10. June, 2008 at 22:20 #52851AnonymousInactiveEf minnið svíkur mig ekki á Tommi rauðan hjálm.
10. June, 2008 at 22:20 #52852AnonymousInactiveBæði Tommi og Kalli eiga grænar Pyrana axir.
11. June, 2008 at 10:58 #528531704704009MemberEr þetta ekki í Haukadal í Trommaranum? Og giska á Sigurð Tómas.
11. June, 2008 at 12:22 #52854RobbiParticipantNei, ekki er það hann. Siggi á ekki hvítan hjálm og klifrar ekki í svona jakka. Hvað segir Palli um þetta ? Hann situr vafalaust glottandi á bakvið skjáinn og hlær að okkur.
rh12. June, 2008 at 23:40 #52855Páll SveinssonParticipantEkki er það ég.
Eina skiptið sem ég hef klifrað í þessum stakk er forðum daga þegar Rock and Ice gengið sagði að þetta væri eini stakkurinn sem myndaðist af einhverju viti.
Man ekki betur en Hallgrímur Magnússon hefði líka verið píndur til að vera í þessum stakk við fyrirsætstörfin.
Kem ekki fyrir mig hvar þetta gæti verið tekið.
kv.
Palli -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.