- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
23. January, 2007 at 00:11 #454820808794749Member
Aldrei þessu vant barst Mogginn inn á borð til mín í dag.
Í umfjöllun um snjóflóðið sem vélsleðamaðurinn fyrir norðan lenti í, skar ein klausa heldur betur í augun.
Þar stendur orðrétt: ,,Enginn vafi er talinn á að hávaðinn frá sleðunum hafi valdið flóðinu”!!!
Nú hef ég gluggað í nokkrar bækur um snjóflóð og setið námskeið. Þetta virðist vera ein af topp 10 goðsögnunum um snjóflóð. Af hávaði getið komið snjóflóði af stað stenst í langlangflestum tilvikum ekki.
Súra staðreyndin er sú að oftast er það maður sjálfur eða félagi manns sem kemur flóðinu af stað.
Nú hef ég ekkert sérstakan áhuga á að velta mér opinberlega upp úr hræðilegum slysum en að sjá svona rugl á prenti í Mogganum finnst mér líka hræðilegt.
Vonandi er að verða smá vitundarvakning.Ein spurning að lokum. Ætlar Ísalp að standa fyrir einhverri fræðslu eða námskeiði um snjóflóð í vetur?
Með bataóskum til vélsleðamannsins.
kveðjan
23. January, 2007 at 09:33 #50961SissiModeratorJamm, ég hjó eftir þessu líka, meiri vitleysan.
Gott samt að þarna eru sleðamenn á ferð, allir með ýli og rífa félagann upp á no time. Klassi að það sé að verða vakning hjá þessum hópi. Mér skilst að slysbjörg sé einmitt með námskeið fyrir sleðamenn um næstu helgi fyrir norðan í snjóflóðum.
Vona að hinum slasaða batni fljótt og vel.
Siz
23. January, 2007 at 10:04 #509621704704009MemberVarðandi blaðafréttina gerir maður ráð fyrir því að einhver heimildarmaður blaðamanns á vettvangi hafi komið þessum upplýsingum á framfæri. Ef rétt er að þetta er svona mikið rugl, þá er það ábyrgðarhluti hjá viðkomanda að láta svona frá sér fara. Voru ekki eintómir sérfræðingar á vettvangi? Eru þeir fangar mýtunnar?
Varðandi fræðsluþátt Ísalp er því til að svara að síðla næsta mánaðar verður helgarnámskeið í vetrarfjallamennsku þar sem einmitt verður farið í þessa hluti. s.s. notkun snjóflóðaýla og -stanga og kennt í leiðarval með tilliti til snjóflóðahættuBatakveðjur til hins slasaða.
23. January, 2007 at 11:06 #509632401754289MemberGóð umræða og tímabært að tala meira um snjóinn! Það er rétt hjá Örlygi að farið er þokkalega vel í snjóflóðapælingar og viðbrögð í Vetrarfjallanámskeiðinu.
Fer líka yfir þetta efni á fjallaskíðanámskeiði íflm á morgun og laugardaginn þannig að það er ekki eins og ekkert sé pælt í þessu, sem er bara af hinu besta.Held að enn sé verið að vinna í flóðinu fyrir norðan en svokallað “propegation”, eða leiðni í snjó, er líklegri kandídad en hávæði mundi maður halda!!! Vélsleði er þungt tæki og fullkominn snjóflóða-startari!
Svo féllu víst 4 flóð í Hlíðarfjalli helgina áður en enginn á svæðinu tjáði sig neitt um það svo ég viti til hérna á síðunni…Ekki vera feimin/nn með upplýsingarnar
23. January, 2007 at 11:09 #509642401754289Memberó já, nú er tími breytinga…hitinn að rísa og því ekki ólíklegt að snjórinn verði “tötsí” næstu daga
23. January, 2007 at 11:23 #50965SissiModeratorVar fyrir norðan fyrir rúmri viku, þá var mjög ísað undirlag og skafinn púðursnjór ofaná.
Fyrst féll flóð skiers-hægra megin við Strýtulyftuna, í hæðinni rétt við Bakkann, sem var skorið niður af iðkanda.
Síðar um daginn féllu tvö flóð í skálinni skiers-left við Strýtuna, maður gengur þarna upp á smá hillu úr lyftunni og skíðar svona slakka niður, oft eðall þar. Þessi tvö voru mjög myndarleg. Síðan var komið eitt framan í hryggnum fyrir ofan Suðurdal morguninn eftir, veit ekki hvenær það féll.
Þetta voru allt púðurflekaflóð, og öll nema þetta fyrsta af sæmilega scary stærðargráðu.
Commentaði aðeins á þetta eftir ferðina hér: http://isalp.is/forum.php?op=p&t=1121
Siz
23. January, 2007 at 11:43 #509661704704009MemberMaður ætti víst að þegja. Með umræddum sleðahávaða var víst átt við akstur og þar liggur villan sem verður leiðrétt.
23. January, 2007 at 23:31 #50967AnonymousInactiveNú er ég eðlisfræðingur og mundi halda að víbríngur frá sleðanum(vélinni) mundi geta gert eitthvað til að koma snjóflóði af stað frekar en hávaðinn einn.
Olli24. January, 2007 at 23:01 #5096824. January, 2007 at 23:06 #50969BjörkParticipantog síðan smá tuð…. það er vonlaust að skoða þennan umræðavef, þ.e. fylgjast með nýjustu póstum. Er mikið mál að breyta þessu þannig að nýjustu póstar færist efst! Hefur alveg örugglega komið áður.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.