Hvað er málið með þessar mínar síður…þær virka aldrey og ég get ekki sett upp nokkurn skapaðan hlut. Já ég er með mundirnar á jpg formati og já þær eru ekki nema nokkur kb af stærð og upplausnin er í kringum 263*350
Hvað er til ráða ? það koma alltaf rauðir stafir sem segja mér að hafa myndirnar á jpg eða gif, hef prófað bæði en ekkert virkar.
Róbert
Jamm, það kom nýlega upp smá vandamál með myndir á Ísalp-vefnum. Hýsingarkompaníið breytti leyfisveitingu á nýjum myndum og eftir sér maður ekki sínar eigin myndir. Ég kíki á þetta við fyrsta tækifæri.
Tjah, hvernig fer maður þá að því yfir höfuð að byrja á þessu, ef ég smelli á mínar síður kemur alltaf bara texti um að maður þurfi að vera orðinn skráður félagi í ísalp og borga árgjaldið, samt kemur fram í mínu yfirliti að það sé greitt…
andri