Kirkjufell á Snæfellsnesi?

Home Forums Umræður Almennt Kirkjufell á Snæfellsnesi?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45293
    1908803629
    Participant

    Ég hef ekki enn farið upp á Kirkjufell á Snæfellsnesi, en oft horft á það og ímyndað mér að það gæti verið hið fínasta brölt.

    Bara að spá… þarf einhverjar græjur eða er nóg að mæta á tveimur jafnfljótum?

    #52888
    Robbi
    Participant

    2 jafnfljótir ættu að duga. Það eru víst einhverjir kaðlar þarna…getur verið vandratað niður.
    robbi

    #52889

    Fór þarna með Skabba einn veturinn. Gaman að fara þarna upp. Það eru kaðlar þarna á nokkrum stöðum sem hægt er að nota til að styðjast við. Mætti samt alveg fara að endurnýja eitthvað af þessu. Þegar maður kom upp á topp eftir að hafa tosað sig upp síðasta kaðalinn þá kom í ljós haugur af gömlum köðlum og drasli sem allt er bundið um stóran stein. Útúr haugnum lá svo þessi sem er núna í notkun.

    Að sumarlagi þarf alveg örugglega ekki neitt af græjum. Menn með lágmarksreynslu í svona brölti ættu ekki að vera í neinum vandræðum með þetta.

    Mæli með pizzunum á Kaffi 59, sérstaklega með piparosti :)

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.