- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
14. February, 2007 at 10:07 #45285AnonymousInactive
Ekki að ég sé neitt að reka á eftir utankjörsaða- athvæðagreiðslu heldur frekar að reyna að koma í veg fyrir
leiðindi eftir á. ER ÞETTA ÁKVEÐIÐ að menn og konur úti í heimi og úti á landi geti kosið utan kjörstaðar??? Sem stjórnarmaður er ég samþykkur að öll athvæði sem hafa borist fyrir ákveðin tíma verði dæmt gild.
Kveðja Olli14. February, 2007 at 12:05 #511070311783479MemberTil að gera þetta eftir lagabókstafnum þá þyrfti líklega að bera upp lagabreytingatillögu þar sem utankjörfundaratkvæðagreiðsla væri heimiluð, ásamt fyrirmælum um framkvæmd. En þá myndi það ekki taka gildi fyrr en á aðalfundi 2008.
Ætli þetta sé ekki réttasta leiðin?
Kv.
Halli14. February, 2007 at 15:21 #511080704685149Member2. grein
Félagar geta þeir orðið sem náð hafa 16 ára aldri. Atkvæðisbærir og kjörgengir eru þeir einir sem greitt hafa árgjald síðastliðins árs en aðalfundur ákveður upphæð þess.Skv. þessu þá hafa allir þeir kjörgengi sem hafa greitt árgjaldið. Síðan er skv. 3. grein
…Kosning fer fram á aðalfundi með bundinni kosningu og einföldum meirihluta atkvæða…En það segir ekkert um það hvernig kosningin á að fara fram.
Þannig væri alveg hægt að láta menn senda inn tölvupóst eða hringja inn atkvæðið sitt þegar fundurinn stendur yfir og kjósa þannig.En það þarf e.t.v. að endurskoða lög ISALP með þetta í huga ef vilji er að þeir sem eiga ekki heimangengt á fundinn geti kosið einnig.
kveðja
Bassi14. February, 2007 at 16:26 #511090311783479MemberSæll Bassi minn,
Ég hafði ekki rennt í gegnum lögin en ef þetta gengur upp svona þá er finnst mér fátt til fyrirstöðu.
Hvernig er annars færið fyrir norðan?
mbk.
Halli14. February, 2007 at 16:46 #511101704704009Member…og lagabreytingar eiga að berast uppstillinganefnd fyrir 10. janúar og skal nefndin kynna þær breytingartillögur í fundarboði fyrir aðalfund…
…uppstillinganefnd hefur ekki verið til í klúbbnum í áraraðir. Framboðs- og kosningagleði er bara að springa svo rækilega út þessi dægrin að þetta kemur öllum í opna skjöldu. Mjög jákvætt allt saman og frábærar umræður. En ekki veit ég svarið, frekar en aðrir, en finnst auðvitað svona helvíti gaman að taka þátt í umræðunum. Veit þó að ég er eldri en 16 ára
14. February, 2007 at 17:02 #511111709703309MemberJá, mér finnst ekkert til fyrirstöðu að hægt verði að greiða utankjörstaðaatkvæði. Spurning um framkvæmd en hún verður að ákveðast núna annars á næsta ári.
Hvernig ætla þau að kjósa ef annar frambjóðandinn nær ekki kjöri í formann en vill þá bjóða sig í almennan stjórnarmann nú þegar svo margir eru um sætin.
Kv.,
Stefán Páll14. February, 2007 at 17:23 #51112Freyr IngiParticipantEr ekki um að gera að hvetja menn til að skila inn atkvæði, það verður svo í höndum fundarmanna að ákveða framhaldið.
Var það ekki “info@isalp.is”
Forvitnilegt að sjá hversu mörg atkvæði koma þarna inn.
pís át,
F -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.