- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
6. February, 2005 at 11:30 #451212806763069Member
Fór á Hnúkinn með Leifi og Hauki, fínar aðstæður þar og hægt að skíða alla leið niður Sandfellið og niður Virkisjökulinn með því að labba kannski max 1km milli skafla/jökla. Lítill snjór á Svínafellsjöklinum en leiðin niður að honum leit mjög vel út. Líklega snjóar svo í vikunni. Mikill ís inni í Grænafellsgljúfri og hátt uppi. Skaðatindar nokkuð vetrarlegir og allar leiðir á Hrútfellstindum litu vel út. Inn við Núp (móti lómagnúp) var smá ís en mjög lítill við Klaustur. Annað var ekið í myrkri en líklega er ekki mikið af ís eftir hlýindakaflann.
Fyrir þá sem eru ísþyrstir næstu helgi mæli ég því með Hrútfellstindum í Öræfunum, Skarðsheiði, Villingardal eða Eilífsdal.
Þeir sem eru mjög ævintýragjarnir gætu svo reynt að fara eftir leiðarlýsingunni á Skarðatinda.6. February, 2005 at 11:52 #49410Jón HaukurParticipantFyrst að byrjað er að tala um aðstæður, þá fórum við Gummi í Múlafjallið eftir hádegissteikina í gær. Nokkrar línur voru færar, en flestar vel blautar. Við Klifruðum þó eina mjög góða mixaða línu sem var þurr og fín, frekar austarlega í fjallinu. Á leiðinni til baka var ekki annað að sjá en að Eilífsdalurinn væri í ágætu standi, þó með þeim fyrirvara að hengjurnar þar eru eflaust ansi vænar núna.
jh
6. February, 2005 at 15:21 #49411RobbiParticipantAðstæðurnar í klifurhúsinu eru með besta móti. Veðurguðirnin hafa leikið um klifrarana með stofuhita. Klósettið er í standi og vatnið í því rennur. Þrátt fyrir þessar fínu aðstæður er loftið þar heldur rykmettað og ættu astma- og ofnæmissjúklingar að halda sig fjarri.
Annars er veðurspáin næstu daga afskaplega vetrar væn og lítur út fyrir alvöru vetur:
Á þriðjudag: Norðan 8-13 m/s á Vestfjörðum, en annars suðvestan 8-13 og víða él, en bjart norðan og austan til. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en frostlaust með suðurströndinni.Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag og laugardag: Suðvestan- og vestanátt og él, en úrkomulítið austanlands. Frost um land allt
Allir vita að með sunnanátt og frosti kemur snjókoma og það helling að honum.
Robster -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.