Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Kalda Kinn – ísaðstæður
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
13. February, 2006 at 00:36 #451080704685149Member
Ég tók mig til og renndi austur í dag, sunnudag.
Tók myndir af svæðinu.
Myndir af svæðinu verða sendar til stjórnar á morgun mánudag.
Spáin lofar góðu, frost og snjókoma alveg fram að helgi.
…Ég er í samningarviðræðum við tvo staði um gistingu.…fylgist með.
kveðja
Bassi13. February, 2006 at 09:28 #50235AnonymousInactiveFrábært hjá þér við bíðum spenntir eftir myndum. Ég held að Sigurður Tómas og félagar hafi náð að koma saman myndum en leiðirnar voru allar upptaldar sá ég. Nú er bara að fá svolítinn múgæsing í málið og fjölmenna.
ísklifurkveðjur Olli13. February, 2006 at 09:47 #50236Siggi TommiParticipantÉg var í sjálfu sér bara búinn að finna textalýsingu af leiðunum en það vantaði að tengja þær við línur á myndum. Bassi, Jón Haukur, Helgi Borg og fleiri voru að reyna að grafa upp gömlu myndirnar frá festivalinu um árið en það hefur gengið illa.
Mínar myndir voru teknar í svo litlum ís að þær eru sennilega ekki mjög hentugar því miður…13. February, 2006 at 10:34 #50237AnonymousInactiveÞá bara að drífa í þessu og láta Bassa taka myndir af helstu klifursvæðunum og senda okkur í tölvupósti og þá skal ég með hjálp Kalla Ingólfs og fleiri teikna yfir 90% af leiðunum inn á myndirnar því ég man felstar leiðirnar nema sumar sem voru farnar í hömrunum nyrst. Ég fór að vísu eina leið þar með Palla en ég held að það hafi ekki verið fyrsta uppferð.
13. February, 2006 at 16:30 #502381402734069MemberÞví miður urðu myndirnar eftir á mínum gamla vinnustað hjá Verði Vátryggingum. Ég tel líklegt að mínu svæði hafi verið eytt og því myndirnar á tölvutæku ekki innan seilingar (en tölvugrömsurum er velkomið að komast inn á mitt gamla svæði ef það er þá til
En nú verður Helgi Borg að fara að gramsa í draslinu og koma með útprentuðu myndirnar sem við merktum inn á um árið góða!!!
Verður kjötsúpa og bjór á festivalinu nú?? Borgarbúar komu með hana norður síðast …….
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.