Aðstæður

Home Forums Umræður Almennt Aðstæður

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45015
    2502614709
    Participant

    Það hefur heldur betur birt yfir landinu um helgina og ugglaust margir Ísalparar skellt sér á skíði með almennum borgurum; Á skíðum skemmti mér tralalala… og ekkert nema gott um það að segja. Við Viðar fórum í Eilífsdalinn á laugardaginn í frábærum aðstæðum, nægur ís og engin bráðnun. Það hafði bætt aðeins í snjóinn og smá skafrenningur setti skemmtilegan blæ á klifrið. Þar sem það var enginn ís í Mosfellssveitinni reiknuðum við með að Múlinn væri ekki í aðstæðum. Er einhver með aðstæður þar á hreinu?

    #50377
    Sissi
    Moderator

    Fór í Múlafjall með Freyzandi og Tryggva Stefáns. Aðstæður þar eru enn í lagi. Lömdum í leið sem fyrir innan Stíganda, vinstra megin í gilinu. 2 spannir, very nice, en of þunn uppi við brún til að hægt væri að toppa.

    Siz

    #50378

    Við Skabbi kíktum aftur inn í Kjós. Fórum á sama stað og síðustu helgi, inn í Kór upp af bænum Fremri-Hálsi. Fórum þrjár leiðir, Spora og svo tvær sem ég veit ekki hvað heita. Það var eins og við værum á allt öðrum stað en fyrir viku. Þá var alveg snjólaust en núna vorum við að vaða snjóinn upp að mitti, alveg ótrúlegt snjómagn. Það var nettur alpafílingur í þessu, ísbrölt og snjóösl í bland. Glymrandi góður dagur á fjöllum, újé!

    #50379
    2902725569
    Member

    Hvað eru menn að banka í ís þegar snjóalög eru með besta móti? Fór á gönguskíðum á laugardaginn frá Bláfjöllum, langleiðina að Brennisteinsfjöllum og til baka um Heiðina háu. Kallið mig bara gamaldags.

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.