- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. October, 2007 at 09:53 #44971GoliMember
Já þið lásuð rétt, og glæpurinn er minn!
Finnst rétt að játa þetta áður en okkur verður stillt upp í Kastljósinu að kalla hvort annað lygara eins og nú er móðins
Við Maggý vorum sem sagt ekki alveg viss um það hvort okkar ætti myndina á forsíðunni, en eftir að hafa rýnt í myndina kom í ljós að förin fyrir framan Hlyn eru mín. Maggý er því myndasmiðurinn en myndin var eignuð mér.
Vonandi hætta barsmíðarnar heima fyrir eftir þessa játningu…..
Já og takk fyrir annars frábært ársrit, hlakka strax til að fá það næsta!
16. October, 2007 at 12:15 #51758ÓlafurParticipantAðal glæpurinn er náttúrulega að vera með einhverja skíðamynd framan á blaðinu! Er þetta ekki klifur- og fjallamennskuklúbbur en ekki e-ð skíðafélag? Verður forsíðumynd næsta rits af Góla í aprés-ski?
En myndin er flott….því er ekki að neita. Það vökna alltaf í manni augun þegar maður sér púður.
ó
16. October, 2007 at 13:46 #517590508693779MemberÞetta gerir útslagið.
Nú borga ég árgjaldið og sæki ársritið. Maður bara verður að vera vitni að glæp!
kv lambi
16. October, 2007 at 16:05 #517601402734069MemberÍSALP hefur nú frá fyrstu tíð eignað sér Telemarkhelgina á Akureyri sem hefur verið stærsta samkoma íslenskra útivistarmanna og kvenna.
Sýnir þetta ekki bara svart á hvítu hverjir innan Ísalp hafa verið duglegastir?
Kv.
Böbbies. Alltaf hægt að tölta á fjöll og ganga í hægðum sínum niður … annað að gera það með stæl á skíðum!
16. October, 2007 at 16:26 #517612806763069MemberÉg er hræddur um að þú getir ekki eignað ykkur skíðamönnum heiðurinn af að vera duglegastir í þetta skiptið.
Það er nokkuð augljóst hverjir eru duglegastir hvort sem litið er á magn eða gæði — Klettaklifrararnir.
Allar aðrar greinar hvort sem það er Ísklifur, skíði, háfjallaklifur eða alpinismi eiga í vök að verjast þrátt fyrir ágætist tilþrif stöku einstaklinga.
kannski er máið að fara að verða sér úti um innanhúss aðstöðu fyrir þessar greinar líka!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.