Skíðuðum þrjú saman Y-gilið hans Palla Sveins í Grafardal, í Esjunni, í gær. Fórum vinstra afbrigðið (climber’s left) sem er fyrirtaksbrekka í flottu gili með hamraveggi á báða kanta.
Færið var svolítið slussy og skemmtilegt og nægur snjór fyrir fólk sem grætur ekki 1-2 rispur á skíðin sín.
Mæli með þessu – en hver fer að verða síðastur.