Fjarðabyggð sameinar Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð.
Mjóifjörður
Ein skráð leið er í Mjóafirði.
Norðfjörður
Ein skráð leið er á Norðfirði.
Eskifjörður
- Hólmatindur
Hólmatindur stendur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, og er nokkuð um ísleiðir, og ein skráð alpaleið í norðurhlíð tindsins.
Reyðarfjörður
- Geithúsaárgljúfur
Geithúsaárgljúfur er fyrir innan Reyðarfjarðarbæ, og þegar ekið er inn að Fagradal, sést gljúfrið greinilega á hægri hönd rétt eftir afleggjarann að Fáskrúðsfirði.
Malarvegur liggur upp að gljúfrinu og er hægt að leggja framan við það, þar sem tekur við auðvelt, nokkurra mínúntna brölt inn gljúfrið.
Í hæsta veggnum vestan megin í gljúfrinu eru Daltón-bræður, fjórar greinilegar íslínur, og eru tvær af þeim skráðar (Jobbi og Vibbi líklega ófarnir). Töluvert er þó í boði af styttri leiðum í kring, allt frá WI2 upp í fríhangandi drjóla. - Fossdalur
Ein skráð leið er í Fossdal, dalurinn er ofan við bæinn Sléttu, um 3km áður en komið er að Fáskrúðsfjarðargöngum.
Fáskrúðsfjörður
Enn er engin skráð leið á Fáskrúðsfirði.
Stöðvarfjörður
Enn er engin skráð leið á Stöðvarfirði, en sögur fara af einhvejum ferðum á tindana Súlur við sunnanverðan fjörðinn.