Brunnhorn
Leið sem spíralar sig upp á miðtind Brunnhorns.
200 metrar, AD+ III 5.4, 6 spannir og ein gönguspönn
Klifrið byrjar frá söðlinum í nyrðra skarði Brunnhorns.
- spönn: Liggur upp bratt haft með grasi, síðan eftir syllukerfi, fyrst til vinstri og svo til hægri þar til komið er að stórum kletti. Þar má gera stans á góðri syllu.
- spönn: Hliðrun um heila línulengd út til hægri eftir grónum syllum, fram hjá bröttum vegg og litlum steinboga. Stans undir enda veggjarins.
- spönn: Stutt en bratt og frekar tæpt haft sem þarf nokkrar taugar í.
- spönn: Hryggur sem liggur í átt að tindinum, aftur fram hjá steinboganum og inn að litlum vegg sem gleypir við bergtryggingum.
- spönn: Ganga upp sundurskorna grasbrekku. Stans undir höfuðvegg hornsins. Næst fikarar leiðin sig réttsælis um tindinn.
- spönn: Hliðrun um línulengd eftir mis tæpum syllum og endar á rúmgóðri syllu undir frekar stuttu en bröttu, grónu og mjög lausu hafti. Haftið skyggir á toppinn. Klifrið er sleipt og laust, sprungurnar tryggjanlegar en óvíst hverju tryggingarnar halda. Haftið endar á litlum toppahrygg norðan í tindinum.
- spönn: Er rétt tæp línulengd. Án efa tæknilega erfiðasta klifrið á leiðinni en loksins eru berggæðin orðin ástættanleg og hægt að koma fyrir sæmilegum tryggingum.
Ítarleg umfjöllun um leiðina birtist í ársriti Ísalp fyrir árið 2021.
FF: Valdimar Harðarsson, Guðni Bridde og Björgvin Richardsson, 1994
Klifursvæði | Vestrahorn |
Svæði | Brunnhorn |
Tegund | Alpine |
Merkingar |