Leið númer 64a. á mynd, er á horninu við Klakahallarhvelfinguna, austan megin við Stynjanda
M 4/5 – WI 4
Leiðin er í Hrútadal í Esju og um klukkustundar gangur er upp að henni frá Eyrarfjallsvegi (460) í Miðdal.
Leiðin var klifin í fjórum spönnum.
#1 55 metrar, M4/5. Byrjað á klettum en endað á þunnum ís undir bröttu íshafti.
#2 50 metrar, WI 4. 20 metra íshaft og snjóklifur þar fyrir ofan.
#3 50 metrar, Snjóklifur með WI 3 hafti.
#4 25 metrar, snjóklifur sem endaði á hengjuklifri.
Route 64c. Left of route 64a Bekri. 240m in 4 pitches
P1: we took one of the right pillar (WI4+ 10m) and then 15m of mixt climbing then snow slope. Belay on a rock with sling and cams. there is an easier pillar on the left but then a longer traverse to the right. 55m
P2: long traverse on easy ledge and then straight the wall with some ice (WI4). Belay on a horizontal crack. 80m
P3: left of the belay, then a kind of ramp to the right (mixt) until the next wall (WI4). Belay on a rock and screws. 40m
P4: easy slope with some steps on ice until the top (WI2) 70m
FF: Matteo Meucci & Sigurður Ýmir Richter, 25. mars 2018
70m, tvær spannir, 110m ef snjóbrekku upp að hengju er bætt við.
Fyrsta spönn byrjar á nokkuð þægilegu klifri upp á litla snjósyllu, þaðan tekur við nokkuð bratt og samfellt klifur. Næsta spönn er aðeins strembnari en með ágætis hvíldum inn á milli.
Orð ársins 2016 er orðið hrútskýring. Orðið var valið í samkeppni sem Ríkisútvarpið, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Mímir – félag stúdenta í íslenskum fræðum stóðu fyrir. Úrslit keppninar voru kynnt sama dag og leiðin var frumfarin.
Orðið hrútskýring er íslenskun á enska nýyrðinu mansplaining. Orðið lýsir því þegar að karlmaður útskýrir eitthvað fyrir kvennmanni á yfirlætisfullan eða lítilækkandi máta.
http://www.ruv.is/frett/ord-arsins-2016-hrutskyring?qt-sarpur_frontpage=3
FA: Jónas G. Sigurðsson og Bjartur Týr Ólafsson 6. jan 2017.
110m, 3 spannir, fyrst þægileg WI 4 upp í snjóbrekku og þægilegan stans, svo tekur við WI 5- spönn, fyrst þunnt kerti sem nær sennilega ekki alltaf niður og svo aðeins feitara kerti sem er samt ekki svo feitt. Síðasta spönn upp að hengju er WI 4 eins og fyrsta spönn.
Frumferðar teymið sá ref hlaupa um dalinn á leiðinni upp að ísnum og fékk leiðin nafn til að tengja við dalinn.
FF: Matteo Meucci and Lorenzo Mazzotta 06. jan 2017
Leið númer 64a. á mynd, er á horninu við Klakahallarhvelfinguna, austan megin við Stynjanda
M 4/5 – WI 4
Leiðin er í Hrútadal í Esju og um klukkustundar gangur er upp að henni frá Eyrarfjallsvegi (460) í Miðdal.
Leiðin var klifin í fjórum spönnum.
#1 55 metrar, M4/5. Byrjað á klettum en endað á þunnum ís undir bröttu íshafti.
#2 50 metrar, WI 4. 20 metra íshaft og snjóklifur þar fyrir ofan.
#3 50 metrar, Snjóklifur með WI 3 hafti.
#4 25 metrar, snjóklifur sem endaði á hengjuklifri.
Fyrst upp bratt íshaft, síðan eftir syllu uns komið er að breiðu gili. Opin leið.
Upprunalega útgáfan er sú sem er merkt með b. Nýrra afbrygðið er merkt með a. og var frumfarið í janúar 2017 af Matteo Meucci, Lorenzo Mazzotta og Sigurði Ragnarssyni. Nýja afbrygðið er ca WI 4.
Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Höskuldur Gylfason, Snævarr Guðmundsson.
Hún er 100 m löng og byrjar nokkrum metrum austan við Þjóðleið 3. Fyrst eru 2 WI 4-5 ísspannir, síðan löng snjóbrekka sem endar í hengju. Þegar leiðin var fyrst klifin var hún mjög tortryggð.
Ísfossinn neðst er aðal „vandamál“ leiðarinnar, en stundum hverfur hann í snjó þegar kemur fram á veturinn. Hægt er að fara vinstra megin við ísfossinn og getur það verið auðveldara.
Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Ágúst Guðmundsson, Pétur Ásbjörnsson, Örvar Aðalsteinsson.