Re: svar: Arnarfjörður – Ísaðstæður

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Arnarfjörður – Ísaðstæður Re: svar: Arnarfjörður – Ísaðstæður

#53702
0304724629
Meðlimur

Gaman að segja frá því að samgöngur á Vestfjörðum eru ekki upp á marga fiska að vetri til. Ef við Ísfirðingar heiðrum samkomuna, þá verður ferðalagið til nágranna okkar á Bíldudal eitthvað á þessa leið. Bíll skutlar okkur að Hrafnseyrarheiði sunnan Þingeyrar. Þar verða skíðin spennt undir, klifurgírnum og bjórnum skellt á bakið og gengið yfir heiði. Úr skarðinu verða skinnin tekin undan og salíbunað niður í Arnarfjörð. Þar bíður okkar bátur sem kemur hópnum yfir fjörðinn.

Þess má geta að á sumrin eru vegalengdin um 145km en ef við keyrum að vetri til, eru þetta um 700km eða eins og langleiðina til Egilsstaða. Svona er Ísland í dag.