Home › Umræður › Umræður › Almennt › Ísfestivalið › Re: svar: Ísfestivalið
30. janúar, 2009 at 09:08
#53675
Siggi Tommi
Participant
Var þarna á ferð um sumar 2006 og sá einmitt mikla möguleika í skálunum inni í Ketildölunum.
Hvestudalur (næsti dalur utan við Bíldudal) var þar með áberandi stóra skál sem minnti mjög á Naustahvilft og var slatta bleyta þar og því líklega kjörlendi. Svona skálar voru svo víðar en ekki eins greinilegt potential.
Svo eru hlíðarnar sem vísa út í Arnarfjörðinn á milli dalanna líklega með efni í leiðir í áttina að því sem má finna í Óshlíð og Berufirði. Vona að myndirnar sem stjórnin ætlaði að deila með okkur sýni þetta eitthvað.