- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
29. september, 2010 at 22:51 #474511908803629Participant
Sælt veri fólkið.
Ég er að leyfa mér að dreyma um GPS græjur og vildi heyra hvaða tillögur menn og konur hafa í þeim efnum. Til þessa líst mér ágætlega á Garmin GPSMAP 62 og horfi helst til ódýrustu útgáfunnar þangað til einhver segir annað…
sjá: https://buy.garmin.com/shop/shop.do?cID=143&fKeys=FILTER_SERIES_62
Hvað leggið þið til?
30. september, 2010 at 01:21 #556252808714359Meðlimurég var að skoða svona græju um daginn og held að 62s sé betri kaup. Þessi er ekki útbúin fyrir auka minniskort og það er ekki hæðarmælir í henni sem þú færð í 62s.
Svo er gott að skoða á Ebay þar sem þú finnur þetta á uþb hálfvirði miðað við hérna heima.30. september, 2010 at 09:11 #556262806763069MeðlimurÉg á svona með snertiskjá og verð að segja að það hefur komið skemmtilega á óvart. Finnst reyndar þessi með tökunnum alltaf svona meira traustvekjandi, án þess að ég hafi yfir nokkruð að kvarta nema síður sé!
30. september, 2010 at 09:20 #556271108755689MeðlimurHvernig virkar snertiskjarinn með hanskaklæddum höndum?
30. september, 2010 at 10:15 #55628Björgvin HilmarssonParticipantFlott að fá þessa umræðu í gang. Maður á sér alltaf þann draum að fá sér nýtt tæki, færa sig úr fornöldinni (GPS12) og yfir í eitthvað nútímalegra með kortamöguleikum.
Maður hefur kannski aðeins verið skeptískur á þessa snertiskjái en það gætu bara verið fordómar. Ívar segir hér t.d. að þeir virki vel. Hvað segja aðrir? Eru gömlu góðu takkarnir málið þegar maður er í þykkum vettlingum og við erfiðar aðstæður?
Eitthvað sem menn mæla sérstaklega með fyrir vetrarfjallamennsku, ísbrölt og annað í kulda og vosbúð?
30. september, 2010 at 10:45 #55629SkabbiParticipantHæ
Ég hef verið með svona græju með snertiskjá, virkar bara fínt. Þú oppereitar það náttlega ekki með dúnlúffum en þú gerir það hvort eð er ekki með GPS12. Þunnir vettlingar eru ekkert mál.
Eina sem ég er smeykur við er að skjárinn skemmist, á mínu tæki er bara „mjúkur“ LCD skjár. Veit ekki hvort nýrri týpur eru með harðgerðari skjá.
Svo er náttlega bara hægt að kaupa sér nýjan gemsa með GPS og Google maps…
Skabbi
30. september, 2010 at 12:50 #556300808794749MeðlimurSkabbi á þitt tæki það ekki til að krassa?
Ég er búin að eiga Garmin Etrex legend í örugglega 4 ár og það virkar fínt. Hægt að setja minniskort og landakort.
Battery life á legend er 25 klst en 20 stundir á Garmin 62.
Mér finnst það skipta mjög miklu máli. Eins að tækið sé ekki of stórt.Over & out.
Sveinborg
30. september, 2010 at 14:22 #55632Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg hef notað Garmin Etrex vista með Íslandskorti og það hefur þjónað mér vel. Einfalt og étur ekki rafhlöður eins og mörg tæki.
Ég lít á alla auka fídusa og meiri þyngd sem ókost.
Ági
30. september, 2010 at 14:41 #556331506774169MeðlimurEr með Garmin 60Csx og gæti ekki verið ánægðari með það. Aldrei vesen.
30. september, 2010 at 21:58 #55635SkabbiParticipantSveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
Quote:Skabbi á þitt tæki það ekki til að krassa?Það gerði það reyndar þegar það var nýtt, krassaði reyndar svo kirfilega að ég þurfti að fá nýtt tæki.
Síðan þá hefur það verið í lagi, þeas nýja tækið.
Skabbi
30. september, 2010 at 22:43 #556362401754289MeðlimurGarmin Geko 201. lítið, létt og ekki skipt um rafhlöður einu sinni í tveimur mánaðarlöngum leiðöngrum.
5. október, 2010 at 18:37 #55642Steinar Sig.MeðlimurHef notað Garmin eTrex Vista HCX í líklega 6 ár. Held ég sé með nafnið á hreinu. Klikkaði aldrei, batteríin endast og endast. Það er nógu öflugt til þess að keyra Íslandskortið, en er samt með léttari tækjum.
Fékk svo fyrir um ári að gjöf Garmin Colorado 300 og er ekki sáttur við það. Fyrir það fyrsta vegur það um það bil þrisvar sinnum meira en gamla og eyðir batteríum á skotstundu. Það frýs einstaka sinnum og þá þarf að kippa batteríunum úr og setja aftur í. Stóri skjárinn og þægilegu takkarnir eru góðir, en þyngdin og batteríeyðslan fara alveg með það.
Ég tek ennþá frekar Vista tækið með mér þó skelin sé brotin og það er því ekki vel vatnshelt auk þess sem skjárinn er svo rispaður að ég þarf alltaf að sleikja hann fyrst og bleyta til þess að sjá á hann. Mæli með öllum eTrex tækjunum.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.