Hrútsfjall

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Hrútsfjall

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47338

    Jæja

    Gerðu þið eitthvað skemmtilegt um páskana?

    Við vorum 3 sem að nýttum okkur veðurgluggann á laugardaginn og skelltum okkur á Hrútfjallstinda. Ferðafélagarnir voru þeir Helgi Egils, djassgúru og Robin hinn Norski. Leiðin sem við fórum er hryggur sem liggur frá Svínafellsjökli og endar á Vesturtindi. Leiðin gefur klassísku leiðinni upp Suðurhlíðina ekkert eftir í gæðum. Við völdum okkur þægilegustu leiðina upp hrygginn því að við vorum í kapphlaupi við veðrið. Ferðin upp á topp tók um 8 og hálfan tíma frá bílastæðinu við Svínafellsjökul. Niðurleiðin tókum 3 tíma.

    Myndir inni á agust.smugmug.com

    Kv. Ági [img]https://www.isalp.is/media/kunena/attachments/legacy/images/P4230145.JPG[/img]

    #56627
    Sissi
    Moderator

    Glæsilegt, verður gaman að sjá myndir af þessu. Freysi og Hemmi fóru eitthvað svipað hérna um árið. Helvíti hafið þið verið röskir samt!

    #56628
    2806763069
    Meðlimur

    Snöggir – já það er það sem við gerum ráð fyrir þegar ÍFLM gædar eru annars vegar!

    Annars duglegir strákar!

    #56631
    Bergur Einarsson
    Participant

    Við bröltum tveir, ég og Jósef, upp NNV hrygginn á Lambatind á Ströndum nú um páskana. Skemtileg leið á flott fjall. Mjög svipaður fílingur og NA hryggurinn á Skessuhornið.

    400-450 hæðarmetrar af 2. gráðu snjó og íshöftum, léttu klettabrölti og snjósyllum. Allt klifrað á hlaupandi tryggingum.

    Ari Trausti minnist á bók sinni 151 tindur að a.m.k. tvær ís/snjólænur hafi verið farnar á Tindindinn en það væri gaman að vita hvaða leiðir menn hafa verið að fara þarna. Flott fjall og fjöldinn allur af möguleikum á skemtilegum leiðum. Sama má líka eiginlega segja um öll hin fjöllin þarna í kring.

    Myndir komast vonandi á netið við tækifæri.

    Kveðja,

    Bergur

    #56633
    Gummi St
    Participant

    Gaman að heyra af þessu Bergur, ég hef lengi ætlað að fara þarna upp einhverja lænuna á Lambatind, hlakka til að sjá myndir og ekki væri verra ef þið eigið „yfirlits“ mynd sem sýnir leiðina.

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.