Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ævintýradagur í Skarðsheiði
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. apríl, 2008 at 09:42 #47302Siggi TommiParticipant
Jæja, þá er maður loksins vaknaður eftir langan dag á fjöllum í gær. Smá langloka um þessa satans löngu ferð hér að neðan fyrir áhugasama.
Við Robbi skelltum okkur í það verðuga verkefni að endurtaka
norðurveggjaþrenninguna miklu sem Palli Sveins og Guðmundur Helgi fóru fyrstir á sínum (og hefur ekki verið endurtekin síðan að ég best veit).
Þrenningin felst í hinum þremur stóru norðurveggjum Skarðsheiðar: Heiðarhorni, Skarðshorni og Skessuhorni, með samtals um 750m mistæknilegt klifur.
Var tekið þokkalegasta alpastart á þetta, vaknað kl. 05 og keyrt af stað kl. 05:30. Eftir smá darraðardans með fastan bíl á gamla Skarðsheiarveginum var labbað af stað kl. 08 og er tímalínan eftirleiðis ca. svona.
09:00 – 10:40. Leiðin Jónsgil (WI4, 300m) í Heiðarhorni klifin, mestmegnis á hlaupandi tryggingum.
12:20 – 14:45. Leiðin Dreyri (WI5, 250m afbrigði af Sólei WI4) í Skarðshorni klifin, mest allt nema fyrsta spönnin (40-50m) á hlaupandi.17:00 – 19:10 Leiðin Skessuþrep (WI4+, 200m) í Skessuhorni klifin. Tekin í þremur löngum (70m+) hálf-hlaupandi spönnum.
Komið í bíl kl. 20:50 eftir tæplega 13 tíma þjark.Ekki var ævintýrinu lokið í bílnum, því hann var jú enn pikkfastur í skafli og enduðum við á að hringja út Bjsv. Brák í Borgarnesi og brugðust þau skjótt við og kipptu okkur upp úr sykurpyttinum. Þökkum þeim kærlega fyrir aðstoðina.
Báðar loftdælurnar í Borgarnesi voru bilaðar svo við enduðum á að eyða klukkutíma extra í að dæla í loftlaus dekkin með 12V leikfangadælu úr bílnum. Komnir heim kl. 01 í nótt vel þreyttir með stífan búk.Rakkurinn samanstóð af: 2x70m línum (notuðum mestmegnis bara eina), 11 skrúfum, 3 snjóhælum, 6 fleygum, 2 tricam-um, 6 hnetum og 5 vinum (notuðum hvorugt af því).
Annars eru sennilega allar leiðir þarna í brakandi aðstæðum. Um að gera að drífa sig uppeftir sem fyrst…
Myndir væntanlegar fljótlega á vefinn.
Frábær dagur á fjöllum!
13. apríl, 2008 at 11:10 #526532806763069Meðlimur…og gamli hlunkurinn var einmitt að fara að velta fyrir sér að fara að tuða um það hvort engin ætlaði að nýta þær frábæru aðstæður sem hlytu að vera í Skarðsheiðinni.
Best að sleppa því!Til hamingju með þetta, frábært afrek. Hver og einn af þessum klifurtímum er flottur – tala nú ekki um þegar þeir eru allir settir saman í einn dag!
kv.
Einn grænn!13. apríl, 2008 at 11:48 #52654SissiModeratorVar svona aðeins að fylgjast með ykkur í gegnum annan og þriðja mann. Magnað stöff, algjörlega magnað.
Var einmitt að spá í því á föstudaginn hvenær einhver myndi gera sniðugt linkup, það virðist vera það heitasta í útlandinu í augnablikinu.
Congrats,
Siz13. apríl, 2008 at 16:08 #52655Páll SveinssonParticipantFlott hjá ykkur.
Er þetta er ekki núna orðin klassik?
kv.
Palli13. apríl, 2008 at 21:46 #52656Siggi TommiParticipantKemur í næsta ársriti sem „klassísk leið“ sem innan við fimm manns hafa farið. Það eru nú nokkrar slíkar í sögu ársritanna…
Palli, þú ættir nú að koma með ferðasögu úr ferð ykkar GHC. Gaman að fá meiri upplýsingar um ferð ykkar, ártöl og annað praktískt auk skemmtilegra punkta.
14. apríl, 2008 at 07:55 #52657ÓlafurParticipantÞið eruð lurkar!
Var ekki glæraharðfenni þegar Palli og Helgi fóru þetta á sínum tíma? Minnir að ég hafi einhverntíman heyrt að þeir hafi rúntað á zúkkunni á milli veggja og parkerað beint fyrir neðan leiðirnar. Er það kannski fært í stílinn?
ó
14. apríl, 2008 at 09:38 #52658Siggi TommiParticipantRobbi er kominn með myndir úr túrnum á slóðina:
http://picasaweb.google.com/roberthalldorsson/HeiArhornSkarShornOgSkessuhornBon appetit!
14. apríl, 2008 at 10:29 #52659Páll SveinssonParticipantSvo ég vitni í ársrit ÍSALP 93. (ótrúleg heimldarit)
Norðurveggirnir þrír voru klifnir á einum deigi (27 mars 1993) af Páli Sveinsyni og Guðmund Helga Christensen. Fyrst fóru þeir Heiðarhorn (jónsgil) síðan Skarðshorn (Dreyri) og enduðu á Skessuhorni (Eystri gróf). Ferðin tók 12 klst. til og frá Reykjavík!
Svona er þetta skráð í ársritinu.
Óli er greinilega með ofurmynni. Jú það var glæra harðfeni og Súkkan sparaði okkur nokkur skrefin.
Það er nú farið að fenna aðeins yfir nákvæmar tímasetningar en eftir einna eða tvær ölkrúsir með Helga ryfjast þetta örugglega upp.
kv.
Palli14. apríl, 2008 at 10:43 #526600311783479MeðlimurThetta er litur gridarvel ut a myndunum, glaesilegur dagur!
Mer synist ad thetta seu eins adstaedur og klifur og thaer gerast bestar i Skotlandi, nema audvitad ad kletturinn er grjothardur yfirleitt med fullt af godum sprungum. Minus bidradir i helstu leidir.
Svona myndir eru nanast nog til thess ad madur skerpi jarnin og gripi naestu flugvel heim a boginn. :o)
Vel af ser vikid drengir og liklega hafid thid blotad skidaleysinu a leidinni milli veggja – tha ser i lagi nidur.
Kvedja
Halli14. apríl, 2008 at 10:53 #52661RobbiParticipantJá það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi bara heppnast vel. Veðrið hefði ekki getað verið betra og aðstæður frábærar.
rh14. apríl, 2008 at 10:58 #52662ABParticipantVirkilega vel af sér vikið. Góðar myndir!
Nú er spurning hver verður fyrstur til að tækla alla veggina í röð að sumri til.
Minnir að í leiðarvísinum standi að klettaleiðin í Skarðshorni sé ,,…7-8 spannir með SLÆMUM megintryggingum.“ Það var og!
AB
14. apríl, 2008 at 11:05 #52663Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantTær snilld. Ekki hægt að segja annað.
Ági
14. apríl, 2008 at 11:32 #526642802693959MeðlimurMetnaðarfullt og glæsilegt. Til hamingju með afrekið.
Jón Gauti14. apríl, 2008 at 11:41 #52665SissiModeratorAndri mig minnir nú að lýsingarnar ykkar Steppo á skemmtiferðinni með eldiviðaröxina í Rifið hafi ekki gefið til kynna að þar hafi leynst sérstaklega mikið af bomber graníti
Siz
14. apríl, 2008 at 12:28 #52666ABParticipantSiz,
Þá hef ég verið að ljúga. Afar traust berg, ekkert laust. Svo ég vitni í einn góðan: ,,Þetta er nú bara eins og malbik!“
Eða, kannski ekki. Það færðust vissulega nokkrir steinar úr stað þann daginn.
En án axarinnar hefðum við aldrei getað höggvið niður eldivið fyrir ,,brew-ið.“ Ekki vill maður kalt te, er það nokkuð, Halli?
Svo er Steppo náttúrlega verkfræðingur og þegar enginn fannst fleygahamarinn þá ,,bestaði“ hann verkefnið og eldiviðaröxin varð ,,heildræn hagkvæmdarlausn“ á vandamálinu.
AB
15. apríl, 2008 at 11:30 #52667Stefán ÖrnParticipantTil hamingju drengir og vel af sér vikið!
Hvaða weggur var svo skemmtilegastur???
Hils,
Steppo15. apríl, 2008 at 13:58 #52668RobbiParticipantDreyri stóð held ég upp úr, enda löng og skemmtileg leið þar á ferð.
Robbi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.