Við minnum á myndasýninguna í kvöld, þar sem sagt verður frá Grænlandi sem áfangastað alpamannsins.
Klárlega eitthvað sem allir ættu að kíkja á, enda möguleikarnir nánast ótakmarkaðir á þessu nágrannalandi okkar.
Fjörið hefst klukkan 20:00 og eftir myndasýningu verður hægt að glugga í bækur klúbbsins sem hafa verið í felum síðustu ár – ótrúlegir gullmolar sem leynast þar.