Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Fatnaður – þriggja laga eða eitthvað allt annað?
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
25. apríl, 2010 at 21:13 #472511908803629Participant
Nú stendur til að endurnýja úlpu og jafnvel meiri fatnað fyrir komandi ævintýri á fjöllum og það brýst svolítið í mér hvað á að velja. Helst velti ég því fyrir mér hvort að maður eigi að halda sig við „hefðbundna“ þriggja laga systemið sem flestir virðast nota á Íslandi í dag eða hvort maður ætti að prófa fatnað eins og Buffalo, sem gefur sk** í þriggja laga lögmálið (http://www.buffalosystems.co.uk/). Auk þess velti ég því fyrir mér hvaða þriggja laga útfærsla er best
Hvað segja reyndir og óreyndir: Hafa einhverjir verið að nota önnur „kerfi“ en þriggja laga og þá hvernig? Hvaða þriggja laga merki/blanda er að virka best? Hafa menn annars einhverja skoðun um hvað er besti útivistarfatnaðurinn í dag?
Ég mun halda í semi erfitt fjallabrölt í ölpunum í sumar og því ekki verra að vanda valið. Allar tillögur og þankagangur væri vel þeginn.
26. apríl, 2010 at 12:01 #553972006753399MeðlimurÞetta er allt sama tóbakið… heima er górullinn king vegna úrkomunnar, í ölpunum kemstu upp með minni vatnsheldni og getur tekið meira „soft-shell“ dót fyrir klifur í hæð.
Maður er samt alltaf smeykur að skilja við sig skelina enda alinn upp í þessu veðravíti hérna heima, þeim fjölgar samt sem eru t.d. nánast hættir að nota górullar-brækur en taka stakkinn með.
Ef þú átt mujos mikinn pjening þá er komið mikið af vönduðum „soft-shells“ sem virka nánast eins og górullin, Patagonia, Mammut, ArcTeryx ofl.ofl.
Góðar stundir!
-R26. apríl, 2010 at 12:23 #553980703784699MeðlimurÞetta snýst allt um útlitið, keyptu það sem kemur best út á mynd punktur
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.