Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › SKÍÐAKORT einstakt tækifæri
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
28. janúar, 2003 at 13:08 #472361709703309Meðlimur
Nú er allt að verða vitlaust í Bláfjöllum og sennilega verður opnað á morgun, miðvikudaginn 29. jan. Ef þú vilt fjárfesta í árskorti þá er það enn hægt í Klifurhúsinu, kortið kostar kr. 8.000 og nauðsynlegt er að hafa passamynd með. Núna eru 10 manns búnir að ganga frá þessu en til þess að þetta verð gildi þurfum við að ná öðrum 10.
Nú er að hrökkva eða stökkva. Næst gæti það verið of seint.
Kv.
Stebbi28. janúar, 2003 at 19:21 #476800412805069MeðlimurGildir kortið ekki á öll skíðasvæði Stór-Hafnarfjarðarsvæðisins???
29. janúar, 2003 at 13:01 #476811709703309MeðlimurÞetta er því miður búið. Átti að renna út 31. des.
Einungis þeir 10, sem voru búnir að skrá sig fengu að nýta sér þetta.
Fór með listann í morgun.
En jú kortið kemur til með að gilda á öll skíðasvæðin á Höfuðborgarsvæðinu.
Kv.
Stefán5. febrúar, 2003 at 10:25 #476820704685149Meðlimur…Hlíðarfjall á Akureyri loka ekki á neinn. Enn er í boði síðan í haust að ef fjórir taka sig saman og kaupa árskort í Hlíðarfjall fá þeir það á 10.000 kr. m/vsk í stað 14.000 kr. m/vsk.
Þið getið kannað málið á:
http://www.hlidarfjall.is/verd.htm
http://www.hlidarfjall.is/árskort.htmÞað þarf að koma a.m.k. þrjár helgar og skíða alla dagana svo það borgi sig + eitt föstudagskvöld því þá er alltaf opið til 21:00
7. febrúar, 2003 at 11:21 #476830703784699MeðlimurHvað eru það margar helgar að borga sig upp f. sunnanmenn?? Hvað kostar t.d. dagurinn, eða helgin?
7. febrúar, 2003 at 11:46 #476840704685149MeðlimurÞað er alveg sama hvernig þú reiknar þetta. Það borgar sig alltaf að fá sér árskort í Hlíðarfjalli því þú verðleggur ekki skemmtanagildið að koma Norður og vera á skíðum.
En endilega reiknaðu þetta út frá þínum forsendum, þú getur skoðað verskránna í Hlíðarfjalli á linkunum hér að ofna.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.