Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Skarðatindar
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
3. apríl, 2012 at 22:08 #47233Björgvin HilmarssonParticipant
…í fínum aðstæðum í dag. GDáF.
Í-B-V
3. apríl, 2012 at 22:49 #57639Páll SveinssonParticipantHvor hliðin?
kv. P4. apríl, 2012 at 08:24 #576402806763069MeðlimurPáll!!!
Heldur þú virkilega að Hardcore og félagar hafi bara rölt sér inn Morsárdalinn til að fara í rómantíska fjallgöngu?
Í framtíðinni væri gott að fá örlítið betur ígrundaðar spurningar.
kv.
Hardcore! Skrásett vörumerki.4. apríl, 2012 at 08:58 #57641Páll SveinssonParticipantÞetta var svo hógværð athugasemd frá Bjögga að það hvarlaði að mér smá stund að þið hefðu verið i hvöld göngu.
En það er gott að heira að gamli góði Hardcore hefur engu gleimt.
Hvorki hug eða hönd.Til hamingju með þetta!
Stóðst þessi gamla góða leið væntingar eða fóruð þið gamla drauminn þinn?kv.
P4. apríl, 2012 at 09:13 #57642SissiModeratorÉg fagna því að Hardcore H. Hardcoreson láti sjá sig hérna á vefnum, mætti alveg endilega vera oftar. Og að þessu sinni að bauna á sjálfan PS. Gaman að því.
Annars vona ég að BH hafi ekki tekið upp siði Hardcore í myndatökum líkt og í klifurlýsingum, sbr. hér að ofan.
Verulega töff, ég er á bömmer yfir því að sitja í sollinum meðan svona flottar leiðir eru klifnar.
Congrats.
4. apríl, 2012 at 10:43 #57643Páll SveinssonParticipantBest að ég svari strax að það var asnalega spurt að Hardcore væri að fara eitthvað gamalt og marg klifið.
Að sjálfsögðu féll gömul lína sem margir hafa horft á en ekki þorað.
Það þurfti alvöru jaxla til að klára þessa línu.En og aftur til lukku félagar.
Bíð spentur eftir krassandi lýsingarorðum.kv.
P4. apríl, 2012 at 18:00 #576442806763069MeðlimurÍBV
03.04.2012. Ívar F. Finnbogason, Björgvin Hilmarsson, Viðar Helgason.
400m hækkun frá jöklinum og upp í fyrsta klifur.1. spönn 70m, 4gr. Ís og brattar snjóbrekkur.
2. spönn 60m, snjór og auðvelt kletta brölt á móbergshrygg.
3. spönn 70m, auðveldur snjó hryggur.
4. Spönn 30m, snjóbrekka
5. spönn 50m, 4gr. Ís.
6. spönn 70m, 3gr. Ís og snjór.
7. spönn, 70m, snjóklifur.
8. spönn, 20m, 5gr, ísklifur. Leiðin sameinast upprunaleguleiðinni sem Snævarr og Jón Geirs fóru fyrstir hér.
9. spönn, 50m, snjór og léttur ís 3gr.
10. spönn, 20m, ótryggjanlegur ís, 4gr. Megintrygging léleg. Endar upp á hryggnum.Eftir það snjóhryggur upp á topp. Af toppnum var farið eftir snjóhryggjum, brattar snjóbrekkur niðurklifraðara, eitt langt sig og svo fleiri snjóbrekkur.
Mér telst til að þetta sé í sjötta uppferðin á þessum fornfræga vegg. Þetta er þriðja tilraunin sem ég sjálfur hef gert með mismunandi félögum til að reyna að setja upp nýja leið.
Þeir sem hafa farið eru líklega:
Jón Geirsson + Snævarr Guðmunds
Palli + Hallgrímur + G.Helgi
Gummi Tómasar + Kiddi skófla
Gummi Tómasar + Styrmir + Ingó
Ívar + Gummi Spánverji
Ívar + Vidar + Bjöggi (ff. á ÍBV).Aðrir sem hafa yfir höfuð komið á tind Skarðatinda eru líklega teljandi á fingrum beggja handa.
Bjöggi er með myndirnar okkar og svo heppilega vill til að þær eru allar á JPG formati en ekki RAW – sem þýðir að hann getur aðeins fiktað mjög takmarkað í þeim og það eru því góðar líkur á að eitthvað birtist á þessu ári.4. apríl, 2012 at 20:39 #57645Arnar Þór EmilssonParticipantGlæsilegt til lukku með þetta.
6. apríl, 2012 at 11:00 #57649Björgvin HilmarssonParticipant7. apríl, 2012 at 00:05 #57651RobbiParticipantTli lukku, virkileg flott lína. Ég sá reyndar ekki sófann hans Ívars á myndunum…ætli ég sitji ekki bara í honum núna.
Keep up the good work…
robbi
8. apríl, 2012 at 17:49 #576582809774899MeðlimurFrábært drengir, það er gott að þessi frábæra lína fór ekki í hundskjaft.
Þá vonar maður að fá tækifæri á að endurfara þessa línu ykkar.
Efsti fossinn var svaka feitur á myndunum frá Bjögga það hefur greinilega verið mjög gaman hjá ykkur.
Sjáumst í páskafelli að ári, það er enn af nógu að taka.10. apríl, 2012 at 10:58 #57659ABParticipantStórglæsileg leið. Til hamingju með þetta!
Kveðja,
AB -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.