Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifur II
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
24. febrúar, 2010 at 09:35 #470402806763069Meðlimur
Jæja, nú er aftur komið frost á fróni…
Ég ætlaði því að skvera af einu Ísklifur II námskeiði á laugardaginn í nafni ÍSALP og ÍFLM. Þeir sem eru skráðir á það fá póst fljótlega með frekari upplýsingum.
Ég væri hinsvegar vel til í fréttir af ísaðstæðum í Hvalfirði og Kjós. Einhver farið í Spora nýlega?
Ef menn liggja á upplýsingum um önnur byrjendavæn svæði í nágrenni höfuðborgarinnar væri það ekki síður vel þegið. Fljótshlíð er t.d. snilld en ég geri ráð fyrir að sóli skíni þar of sterkt??
Kv.
Ivar24. febrúar, 2010 at 10:52 #552340808794749MeðlimurÍsklifurnámskeið sömu helgi og Ísklifurfestival?
24. febrúar, 2010 at 10:58 #552352806763069MeðlimurKemst ekki á festival. og við erum langan lista af þátttakendum þar sem þessu var frestað um daginn. sorry!
25. febrúar, 2010 at 16:13 #55256SkabbiParticipantHæ
Súrt að námskeiðið skuli lenda á þessum óheppilega tíma.
Ég fór ísrúnt inn í Hvalfjörð í gær. Grafarfossinn leit ágætlega út úr fjarlægð. Lítill ís í Búahömrum, nema einna helst í Tvíburagili. Eilífsdalur mjög þurr, Einfarinn örugglega inni, kannski Tjaldsúlur en Þilið átti langt í land. Oríon var heillegur að sjá, allavega frá veginum. Múlafjall mjög þurrt, Stígandi þunnir að sjá og neðsta haftið í Rísanda íslaust með öllu. Hugsanlega heillegar línur í Leikfangalandi. Sáralítið heillegt af öðrum leiðum, líklega sökum þurrka og snjóleysis.
Enduðum í Brynjudal, n.t.t. í Þverá fyrir ofan bæinn Þrándarstaði. Neðarlega frýs áin á nokkrum stöðum, bauð upp á skemmtilegar 20-30 metra spannir, WI 3-4. Enn ofar í gilinu eru fleiri stuttar og þægilegar spannir. Giska á að þetta sé það sem þú ert að leita að? Fórum ekkert inn í Kjós, Spori hefur örugglega verið góður í gær an hefur eflaust safnað miklum snjó í dag og nótt.
Eníhú, góða skemmtun um helgina, ég skal skála fyrir þér í pottinum…
Skabbi
25. febrúar, 2010 at 22:12 #55259Arnar JónssonParticipantHeld að þið hefðuð átt að kíkja í Glymsgil. Það voru svipaðar aðstæður fyrr í vetur þar sem Múlinn, Eilífsdalur og Brynjudalurinn voru mjög íslitlir og ekki neitt sérlega fýsilegir til klifurs. En í Glymsgili var hinsvegar mun meiri ís en þetta er alltaf svo breytilegt.
Sjáumst fyrir austan,
Arnar -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.