Sælir félagar!
Erum að spá í hvort aðstæður á Hvannadalshnjúki séu hagstæðar í lok febrúar. Stefnum á að fara á skíðum og væntanlega gista uppfrá. Verðum að sjálfsögðu með brodda, axir og línu en vildum gjarnan vita hvort menn viti almennt hvernig snjóalög eru á þessum árstíma.
Hef farið þarna í lok maí og byrjun júní en aldrei um miðjan vetur.
Getur einhver gefið góð ráð og frætt mig um aðstæður?