Nýr leiðarvísir fyrir Stardal

Home Umræður Umræður Klettaklifur Nýr leiðarvísir fyrir Stardal

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46807
    Siggi Tommi
    Participant

    Jæja, eftir langa meðgöngu hef ég nú lokið við að endurgera klifurleiðarvísinn fyrir Stardal.

    Sjá https://www.isalp.is/art.php?f=86

    (eða beint á http://www.rds.is/siggi/klifur/topo/index.htm)

    Með von um að almenn ánægja sé með þetta framtak og að djásnið eigi eftir að nýtast mönnum vel í dótaklifrinu í sumar…

    #51386
    0808794749
    Meðlimur

    Magnað stöff og frábært verk unnið.
    Til hamingju með þetta!

    #51387
    Páll Sveinsson
    Participant

    Glæsilegt.
    Ánægður með framtakið.

    Sérstaklega ánægður með að þú skulir hafa slept því sem fór hvað mest í taugarnar á mér í gamla ÍSALP vísinum.

    Gleymdist þó í einni leið. Hvíta deplinum;-)

    kv.
    Palli

    #51388
    Ólafur
    Participant

    Kúl!

    Sprungan milli 7-up og Flagsins hefur líka verið klifruð og ég held að hún hafi verið gráðuð 5.9. Ég klifraði hana amk einhverntíma en veit fyrir víst að ég var ekki fyrstur. Minnir að það standi eitthvað um þetta í einhverjum gömlum fréttapistli.

    Hvað var það sem fór svona í taugarnar á þér í gamla leiðarvísinum Palli?

    ÓliRaggi

    #51389
    0311783479
    Meðlimur

    Glæsilegt Siggi!

    Halli

    #51390
    0703784699
    Meðlimur

    flott framtak….búinn að prenta út og vonandi fá vinirnir að fljóta með í klifur í sumar.

    kvHimmi

    #51391
    AB
    Participant

    Vel að verki staðið.

    Glæsó.

    AB

    #51392
    Siggi Tommi
    Participant

    Mig grunar að það hafi verið „leiðin er tortryggð“ sem hafi farið fyrir brjóstið á PS.
    Hann vill meina að með nútíma stærðum af vinum og svoleiðis séu margar áður tortryggðar leiðir það ekki lengur.
    Það má vel vera en þó líklega ekki algilt, því sumar sprungur uppfrá eru sennilega jafn ótryggjanlegar nú og þá.
    Ég fór þó að ráðum PS og hreinsaði þetta út víðast hvar.

    Fleygurinn er ennþá í Hvíta deplinum ef ég man rétt (það er alla vega fleygur í svarta veggnum).
    Palli ætti kannski bara að hamra járnið úr aftur og fara leiðina „klín“ til að sanna mál sitt… :)

    #51393
    2806763069
    Meðlimur

    Mjøg kul, sumir eiga skilid stort klapp a bakid!

    #51394
    0309673729
    Participant

    Glæsilegt !

    kveðja
    Helgi Borg

    #51395
    Smári
    Participant

    Frábært framtak. Búinn að prenta hann út og til í slaginn…

    kv. Smári

    #51396
    Ólafur
    Participant

    Fleygurinn er ennþá í Hvíta deplinum – nema þá að Andri sé búinn að taka hann og setja í klifurminjasafnið sitt ásamt hnetunni sem var í þakinu á Óperu.

    #51397
    2704735479
    Meðlimur

    mjög flott!

    #51398
    AB
    Participant

    Góður Óli:)

    Nei, ég hef ekki fjarlægt fleiri ryðgaðar tryggingar úr Stardal.

    Hnetan úr Óperu er enn heima, ásamt gamalli skrúfu sem við Steppo fundum í NV-vegg Skessuhorns. Já, kannski að þetta sé vísir að klifurminjasafni, Óli þú mátt vera aðstoðarsafnvörður!

    Það væri vel þegið ef einhver nennti að sækja vininn sem Stefán Hús gleymdi í Tjaldinu í Eilífsdal, sá gripur myndi sóma sér vel í safninu. Ég sé fyrir mér enskan texta við gripinn: ,,This spring loaded camming device has been to the top of Nanga Parbat and also helped Steve House to make an astonishing ascent of the much coveted route „The Tent“ in Eilífdalur, Iceland.

    Vinsamlega snertið ekki sýningargripina.

    Ég fjarlægði hnetuna úr Óperu einfaldlega vegna þess að hún var ónýt og ég þurfti að nota plássið fyrir tryggingu. Ég frétti svo síðar að einhverjir kappar hefðu fengið fortíðarljóma-kast og fundist ég vera að skemma eitthvað. Æ æ.

    AB

    #51399
    2005774349
    Meðlimur

    Mjög fínt sko.

    HRG.

    #51400
    2303842159
    Meðlimur

    Kúl!

    kv Haukur

    #51401
    2003793739
    Meðlimur

    Glæsilegt framtak.

    Kv.
    Halli

    #51402
    2506663659
    Participant

    Glæsilegt framtak hjá þér.
    Takk fyrir þetta.

    kv,
    GSS

    ps.
    Tengt opnun klifurmynjasafnsins má svo hittast í „Dalnum“ og rifja upp afhverju þær voru svona „tortryggðar“ með hexur og kubbahnetur einar að vopni.

    #51403
    0703784699
    Meðlimur

    Stiftamt…..var það þarna í topo-num…..skoðaði það nú ekki sérstaklega…..bara af því að það er nú forsíðumynd dagsins!

    Gimp

    #51404
    Páll Sveinsson
    Participant

    Fleiri en einn hefur farið Hvíta depilin án þess að klippa í riðhrúguna. Hvort það var til að sanna að fleigar og boltar eru óþarfir eða þeir hafi ekki treist honum veit ég ekki.

    Fékk nú einu sinni BB í fangið í þeirri leið og þá hélt fleigurinn.

    Þegar ég las í gegnum þennan vísi þá fékk ég fiðring í magan og búinn að heita mér því að skreppa í dalin og rifja upp gamla takta.

    kv.
    Palli

    #51405
    1908803629
    Participant

    Þetta er glæsilegt rit, frábært framtak. Með þennan leiðarvísir að vopni held ég að ég geti loks látið verða af því að spreyta mig í dótaklifrinu… hneturnar hafa allavega gert lítið gagn heima…

    Takk fyrir þetta Siggi.

    #51406
    Siggi Tommi
    Participant

    Minni á að Gerðubergs leiðarvísirinn er þarna á vefsíðunni líka.
    Það er einnig frábært klifursvæði, sérstaklega fyrir þá sem eru komnir upp úr rásholunum í dótaklifrinu.
    Ekki sérlega byrjendavænt svæði en frábært öngvu að síður.

22 umræða - 1 til 22 (af 22)
  • You must be logged in to reply to this topic.