Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Leiðavísir af Mýrarhyrnu
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
22. janúar, 2008 at 13:59 #46747RobbiParticipant
Er búinn að setja gróflega saman leiðavísi af mýrarhyrnu. Um er að ræða austurhliðina. Njótið og klifrið.
http://hi.is/~roh2/Lei%d0arv%a1sar/
Robbi
22. janúar, 2008 at 14:54 #52272SkabbiParticipantHæ
Flottur leiðarvísir robbi, skýr og vel upp settur.
Ætla samt að agnúast út nokkur smáatriði.
Það vantar leið nr. 1 inn á. Vorum við ekki sammála um staðsetninguna á henni?
Furðulegt að tala um „einar flottustu leiðir“. Einn virkar betur í eintölu en fleirtölu.
Og þetta fatta ég ekki:
„Mjög falleg og brött klifurleið sem virðist vera erfiðari en hún lítur út fyrir að vera.“
Er hún erfiðari en hún lítur út fyrir að vera eða virðist hún erfiðari en hún er?
Mér fannst hún líta út fyrir að vera drullu erfið, og vera það!
En að lokum, glæsilegt verk, trú því að við fáum fleiri svona áður en veturinn er á enda!
(Sjáiði þessa frábæru complement samloku? Byrja með hrósi, rífa svo niður og enda á hvattningu! Svona á að gera þetta!)
Allez!
Skabbi
22. janúar, 2008 at 15:05 #52273RobbiParticipantLýsingarnar á leiðunum eru teknar beint upp úr ársriti, kanski með smá breytingu á orðalagi einhverstaðar.
„Mjög falleg og brött klifurleið sem virðist vera erfiðari en hún lítur út fyrir að vera.“ Þetta stendur í ársritinu.
Leið nr 1 er ekki inná þar sem ég hef ekki hugmynd um hvar hún er en hú verður sett inn á um leið og ég hef fundið út úr því. Þessvegna byrjar hann á leið 2.
Þetta er ekki lokaútgáfa heldur „gróflegur leiðarvísir“ eins og stendur hér að ofan.
Góðar stundir.
Robbi22. janúar, 2008 at 15:08 #52274RobbiParticipantEr talsvert erfiðari en hún lítur út fyrir að vera átti þetta að vera og stendur íársritinu, prentvilla.
rob22. janúar, 2008 at 15:19 #52275AnonymousInactiveFrábært framtak Robbi, ég held að ég geti upplýst hvar leið 1 er eða réttara sagt nokkurn veginn. Málið er að Einar Öræfingur fór við annan mann einhverja leið í rauða kassanum á topoinum. Það tókst aldrei á sínum tíma að fá nákvæmlega hjá honum staðsetninguna þannig að það var látið liggja á milli hluta. Núna ef Einar les þetta væri tilvalið fyrir hann að merkja inn á tópóinn hans Robba hvar leiðin liggur eða segja honum það og Robbi uppfærir. Ég trúi ekki öðru en að hann vilji eiga kredit fyrir leiðina.
Kveðja Olli22. janúar, 2008 at 15:31 #52276Páll SveinssonParticipantShitt… Ég var búinn að gleima hvað þetta eru flottar leiðir.
Frábært framtak.
kv.
Palli22. janúar, 2008 at 15:31 #522770703784699MeðlimurDavíð Halldór Marínósson (Golli) klifraði með EinarÖ þennan sunnudag á ísfestivalinu……veit ekki hvort þú sért að tala um sömu leið þó.
Flott framtak Róbert, og já vonandi ná menn að koma þessu í betra horf á næstu mánuðum,
Lærði þessa taktík sem þú talar um Skabbi, að fyrst hæla, svo brjóta niður og ljúka því með hóli aftur, á ferð minni með Grönli nokkrum í haust, sem hafði lært þetta við störf í félagsmiðstöð hjá ÍTR og hef reynt að notast við þetta síðan þá við góða raun.
Svo þarf að klára hin svæðin og taka þetta saman á einn stað. Hvernig er það voru ekki alltaf tekin fram FF dagsetning?
kv.himmi
22. janúar, 2008 at 16:21 #52278Stefán ÖrnParticipantÞetta er glæsilegt!
Ekki spurning að mar verður að kíkja þarna hið fyrsta!
Hils,
Steppo22. janúar, 2008 at 17:05 #52279Gummi StParticipantFlott !
ég keyrði þarna framhjá um daginn og gjörsamlega starði þarna uppí Hyrnuna… gegggjaðar leiðir!
THUMBS UP ROBBI !!!
kv. Gummi
23. janúar, 2008 at 00:01 #522800304724629MeðlimurLítur vel út en… er Comeback og Abdominal ekki með vitlaus númer? 5 á að vera 6 og öfugt.
kv
rok23. janúar, 2008 at 09:45 #52281Björgvin HilmarssonParticipantHvernig var það Rúnar, voru þið Olli ekki sammála um að leiðin hafi verið nefnd Abdominalis? Ekki málið halda sig við það sem rétt er svo rangnefnið festist ekki í hugum fólks?
23. janúar, 2008 at 11:32 #52282AnonymousInactiveÉg held að lítil ástæða sé til að rífast um nöfn á leiðum sem eru nefndar í ársriti Ísalp. Ég hef nú ekki haft nennu til að fletta því upp.
Olli -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.