Það var múgur og margmenni í skessuhorni í dag. NA-hryggurinn var klifinn af hvorki meira né minna en 12 manns. Var þar á ferð stór hópur frá HSSR, Bjöggi og Skabbi flutu með, og rétt á undan okkur voru Ágúst og Skyler (kani af vellinum). Það má með sanni segja að það hafi verið fjölmennt.
Leiðirnar á fésinu sitthvoru megin við Rifið litu út fyrir að vera í aðstæðum, en þó máske eylítið þunnar. Massa dagur.
Robbi
Kíktum á Grafarfoss í gær, Steppo, Hálfdán og undirritaður. Kertin í veggnum hægra megin voru að yfirgefa svæðið eitt af öðru, enda rigning og 3 stiga hiti. Fórum Granna í staðinn og var það prýðileg skemmtun, svona í vætunni.
Ferlega ljót prjónahúfa fannst frosin við eitt íshaftið á NA hryggnum rétt fyrir neðan toppinn. Húfan er gul-rauð-græn-blá röndótt og með flís fóðri. Ef einhver hefur grátið sig í svefn yfir að hafa glatað henni má sá hinn sami hafa samband við mig. agustth@gmail.com
Annars var töluverður ís í norðurhlíðum Hafnarfjalls og Villingadalur er örugglega góður. Ekkert að gerast í búhömrum. Sharing is caring.