Sælir,
Eins og þið vitið þá hafa keppnisgreinarnar ekki verið eins, ár frá ári.
Við erum alltaf að þróa nýjar tegundir keppnisgreina með mismunandi árangri og mis vel tekið af keppendum, eðlilega.
Ætla að leggja þetta fyrir ykkur, keppendur góðir, það kom upp smáágreiningur upp í nefndinni, viljið þið að við útfærum stökk-keppnina eitthvað í líkingu við mydnskeiðið hér að neðan?
http://www.dagbladet.no/sport/2005/03/04/425217.html
Það væri gaman að fá viðbrögð frá ykkur.
Munið síðan að skrá ykkur…bara upp á ráðstafanir og fleira.
Gaman að sjá og vita að yfir 20 manns eru búnir að boða komu sína og ætla að koma…hvernig sem skíðafærið verður…
kv
mótsnefnd