Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Eyjafjöllin fín
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
31. janúar, 2004 at 21:01 #46375Páll SveinssonParticipant
Þokkalegur ís. Blautur að vanda.
Paradísarheimt lítur vél út.
Þetta er þó ekki eins og það getur best verið.
Svolítið um íshröngl á ferðinn þegar sólinn fór að skína.Ég og Helgi fórum nýa línu. Meira um það síðar.
Palli
1. febrúar, 2004 at 15:05 #48378AnonymousInactiveÞess ber að geta fyrir þá yngri og óreyndari að stórhættulegt getur verið að klifra undir Eyjafjöllum þegar sól skín eins og núna um helgina. Ef menn ætla að klifra þarna er best að leggja snemma af stað áður en sól nær að skína á ísinn því hrun getur verið mjög varasamt þarna þegar sólin tekur að hita upp ísinn.
Eyjafjöllin eru nú samt toppstaður að klifra því ganga frá bíl í klifur er yfirleitt um 5 mínúttur svona rétt til að hita upp kroppinn fyrir átökin.
Olli1. febrúar, 2004 at 20:32 #48379Páll SveinssonParticipantÆtlaði að vera svakalega klár og skella inn myndum af aðstæðum í eyjafjöllum og leðinni sem við fórum á mínar síður.
Svo má ekki gleima flottustu óförnu leiðinn við hliðina sem allir hafa horft á en ekki fattað hversu geðveikhún er.Þetta er allt til á myndum sem engin fær að sjá.
Stuttu máli þá gefst ég upp. Adsk. myndirnar vilja ekki byrtasta.
Palli
sem kann ekki að vefa.1. febrúar, 2004 at 22:18 #483802806763069MeðlimurBlessaður sendu þetta á ritnefndina hið bráðasta svo hún geti skellt þessu á forsíðuna, ég er amk forvitinn!
1. febrúar, 2004 at 22:55 #483810309673729ParticipantBúinn að bjarga málinu.
kveðja
Helgi Borg1. febrúar, 2004 at 22:56 #48382Páll SveinssonParticipantÞetta var ekkert nema aulaskapur í mér.
Helgi kom mér á rétta braut.Kíkið á síður félaga.
Palli
2. febrúar, 2004 at 00:25 #483830309673729ParticipantEigum við ekki frekar að segja að hjálpartextinn hafi verið ónákvæmur. Ég er búinn að bæta smá texta um þetta tiltekna mál sem olli töfum í kvöld.
Nú er ekkert því til fyrirstöðu að félagar skelli inn sínum síðum í stríðum straumum.
Ég hef heyrt því fleygt að vefnefndin ætli að mæta reglulega niðrí félagsheimilið með slides-skanna til að skanna myndir fyrir félaga og aðstoða þá við að koma upp sínum síðum. Einu sinni í viku sagði orðrómurinn.
kveðja
Helgi Borg -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.