Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísaðstæður
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
25. desember, 2012 at 18:42 #462881811843029Meðlimur
Halló og gleðileg jól!
Fór eitthver að lemja ís í dag? Eða fór kannski eitthver í jólabíltúr að skoða ís?
Eitthvað að frétta af aðstæðum á SV horninu?
Jólakveðja,
Atli Páls.
25. desember, 2012 at 21:53 #58067Otto IngiParticipantSælir og gleðileg jól,
Ég, Biggi og Arnar skelltum okkur í Áslák í kjós í dag. Rosalega blautt en við gátum farið lengst til vinstri og sloppið við mestu sturtuna. Hlákan hefur unnið helvíti mikið á ísnum þarna í kjós, Spori sem dæmi virtist vera frakar þunnur…en klifranlegugur þó.
kv.
Ottó Ingi26. desember, 2012 at 14:44 #58068Arni StefanKeymasterÞað voru glimrandi klettaklifursaðstæður á aðfangadag. Við Rúna og Helgi skelltum okkur í Svarta turninn til að hita upp puttana fyrir átökin við pakkana.
26. desember, 2012 at 17:22 #58069ABParticipantVið Guðmundur Logi fórum í Tvíburagil í dag. Þar hittum við fyrir Berglindi og Heiðu. Gilið er fremur íslítið en þó eru nokkrar leiðir færar. Við þurrtóluðum „Helvítis fokking fokk“ upp að efsta bolta en leiðin er svo að segja íslaus. „Ólympíska félagið“ reyndist vera í góðum en krefjandi aðstæðum. Hvorugur Tvíburafossanna, efri og neðri, er í aðstæðum.
55° virtist þunn, séð úr fjarska.
Kveðja,
AB26. desember, 2012 at 22:27 #580703103833689MeðlimurJá það var fersk stemmning í Tvíburagilinu í dag.
Skildi eftir frosna karabínu í efsta bolta í Ólympíska félaginu. Ef einhver með heitan tedreitil á leið hjá boltanum á næstunni þá væri mjög vel þegið að sá hinn sami gæti losað bínuna og komið henni til mín. …lofa að splæsa stórum bjór á hetjuna!
27. desember, 2012 at 11:57 #58073SissiModeratorGleðileg jól.
Undirritaður fór ásamt Skarphéðni og Björgvini í Flugugil í Brynjudal, menn vildu fá smá tilbreytingu frá Múlafjalli. Það er fremur þunnt og blautt um að litast neðarlega í gilinu en aðkomuhöftin að Óríon voru fær.
Óríon sjálfur var nokkuð hress, testofan flott þó að sumir hafi pissað á teppið, ekki mikið rennsli í fossinum en svolítið fönký ís á kölum og loks snísklifur fyrir ofan bratta kaflann.
Nokkrar myndir: https://picasaweb.google.com/104240981616495770314/OrionIBrynjudalAAnnanIJolum
Kveðja,
SF27. desember, 2012 at 12:23 #580742210803279MeðlimurFór með Gauja að Spora á Þorláksmessu. Fossinn var alveg ber að neðan en með smá hjúp efst. Klifruðum í staðinn smá lænu sem varla nær 3.gráðu, kannski 30m, alveg syðst/austastinní hvilftinni. Yfirleitt er hún sennilega snjópökkuð en núna var þetta eini klakinn á svæðinu.
28. desember, 2012 at 18:42 #58077SissiModeratorÁslákur var klifranlegur í bleytunni í dag, kíktum í hópferð Baldur, Björgvin, Guðlaugur Ingi, Védís og undirritaður.
Stuð.
[attachment=519]slkur.JPG[/attachment]
1. janúar, 2013 at 19:48 #58081Arni StefanKeymasterVið Haukur Már og Viktor kíktum í Nálaraugað í Búahömrum í blíðunni í dag. Leiðin er fær en væri seint kölluð feit. Mjög skemmtileg engu að síður. Við höfðum með klettarakk sem kom að mjög góðum notum.
Löbbuðum svo niður Tvíburagil til að tékka á aðstæðum og þar er allt löðrandi í ís svo við stóðumst ekki mátið og skellum okkur í efri fossinn áður en við fórum niður. Báðir Tvíburafossarnir eru spik feitir og Ólympíska félagið nær niður (bara rétt svo samt) og vantar ekkert mikið upp á að það væri hægt að fara þá línu bara á ís.
[attachment=518]1_2013-01-01.jpg[/attachment]
1. janúar, 2013 at 22:10 #58084Björgvin HilmarssonParticipantFáránlega mikill ís í Tvíburagili, vá! Hef aldrei séð þetta svona.
Við Skabbi paufuðumst upp Grafarfoss og síðan Kókostréð í dag í blíðunni, sem er víst á undanhaldi því miður.
– b
3. janúar, 2013 at 00:42 #580892109803509MeðlimurJá rugl. Var nánast íslaust fyrir viku síðan!
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.