Þetta er ekki aprílgabb. Með dálítlum mokstri hefur tekist að koma Norðurleiðinni inn og því er hægt að hafa opið fyrir almenning. Hart færi núna í morgunsárið en eitthvað mun meirna (meyrna dregið af maur) í sólbráðinni þegar líður á daginn.
Hér er fanta gott veður og ekki er síðra að skella sér á gönguskíðum út á heiði og taka nesti með. „Picnik“ ofan í einhverjum Katlinum (gígar hérna rétt hjá) er alveg tilvalið fyrir fólk á rómantísku nótunum.
Kv. Árni Alf.