Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Nýjar leiðir í Pöstunum
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
25. apríl, 2012 at 08:57 #461551210853809Meðlimur
Síðastliðinn sunnudag klifruðum undirritaður, Gulli, Manuela og Robbi í Pöstunum undir Eyjafjöllum. Það væri þó ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að við hreinsuðum, boltuðum og klifruðum tvær nýjar leiðir.
Önnur leiðin liggur á horninu hægra megin (austan) við leiðina Vippan og hefur fengið nafnið Testósterón jóga. Erfiðleikinn er á bilinu 5.10a/b. Hin leiðin, Hornafræði alþýðunnar, er hægra megin (austan) við leiðina Sóley og er ca. 5.9.
Upplýsingar um klifur í Pöstunum og leiðarvísi sem Jafet tók saman má finna hér. Athugið að Vippan, leið sem Kristín Martha boltaði í fyrra, er ekki merkt í leiðarvísinum en hún er á móti Heyvagninum á horninu.
Jósef
25. apríl, 2012 at 14:57 #57708Otto IngiParticipantFrábært að heyra.
Ég klifraði leiðina Vippan um daginn og var að velta fyrir mér hvort það sé komin einhver gráða á hana?
kv.
Ottó Ingi25. apríl, 2012 at 15:28 #57709gulliParticipantVið vorum nokkur sem klifruðum Vippuna í fyrra og mig minnir að 5.10c hafi þótt ásættanleg gráða.
Annars má bæta því við frá Jósef að það á eftir að ganga frá akkerum í báðum leiðum. Einungis einn bolti er hvoru akkeri fyrir sig eins og er en það stendur til bóta.
26. apríl, 2012 at 09:28 #577110503664729ParticipantGlæsilegt.
Gott að fá nýjar leiðir.Bendi þeim sem eiga eftir að munda borvélar í Pöstunum á að hafa Flóðalabba í huga og nefna leið honum til heiðurs.
Draugurinn Flóðalabbi er það sem Pöstin eru frægust fyrir en þessi skrautbúna afturganga særekins sjómanns bjó í Pöstunum. Þar sat hann fyrir ferðalöngum en fyrr á öldum lá þjóðleiðin um brattan stíg í Össuaugum fyrir ofan klettana í Pöstunum. Á þeim tíma rann Markarfljót alveg upp að klettunum. Flóðalabbi var á endanum kveðinn niður „í rassi“ en það er skoran sunnan við klettana þar sem bílum er nú lagt.
Munum eftir Flóðalabba.JVS
3. maí, 2012 at 10:53 #57717HrappurMeðlimurHét leiðin sem merkt er sem „Svartleiðin“,hjá Jafet ekki Glasnost?
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.