Utanbrautarbandalag ÍSALP efnir til utanbrautarsprells á laugardaginn (7. feb) í hlíðarfjalli. Þá er meiningin að hittast við strýtuskálann kl 1200 taka lyftuna svo eins langt og hún nær og rölta svo upp á brún. Finna svo flottustu línuna og skíða/bretta svo niður.
Þetta verður bara gaman enda fullyrða norðanmenn að fjallið sé fullt af púðri.
Sjá nánar í dagskrá efst á síðunni og á facebook í utanbrautarbandalags grúppunni.
Allir norður um helgina.
kv. Smári