- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
24. ágúst, 2005 at 00:19 #45957jafetbjarkarKeymaster
Halló halló..
Ég er í smá vanda, þannig er að við erum þrír hérna, og tveir okkar byrjendur, hinn veit hvað hann er að gera og hefur verið langi að klifra. En hann er að norðan, þannig að við stöndum frammi fyrir því að vita ekkert um „aðal“ staðina. Kortið sem ég fann á síðu klifurhúsins hjálpaði eitthvað. En okkur langar líka að finna flotta hella eða staði til að síga í.
Við fórum í helli við Dímon, hjá þingvöllum, en það er líka sá eini sem við rötum alminnilega að hehe…
Hvernig eigum við að snúa okkur, eru gps punktar einhverstaðar sem hægt er að nálgast??
Vonandi getiði hjálað mér;)
24. ágúst, 2005 at 09:37 #499260405614209ParticipantÞið getið fengið einhverjar upplýsingar um hella á http://www.speleo.is sem er heimasíða Hellarannsóknafélagsins
Kveðja
Halldór24. ágúst, 2005 at 14:15 #49927jafetbjarkarKeymasterjá ég var einmitt búinn að kíkja á þá síðu, eina er að maður veit voða lítið um hvort hellirinn sé innangengur eða hvort hann bjóði uppá sig…
24. ágúst, 2005 at 19:38 #49928ABParticipantNú bíð ég eftir innskoti frá Hardcore, sem er vanalega ekki lengi að taka við sér þegar menn tala um að fara stunda sig að óþörfu:)!!!
Kv,
AB24. ágúst, 2005 at 22:42 #499290405614209ParticipantLíklegast best að setja sig í samband við félagið og spyrja þá.
Kveðja
HalldórPS var ekki ein stelpa í fótboltanum sem hét Vanda Sigurðardóttir – kölluð Vandasig!
25. ágúst, 2005 at 12:37 #49930Jón HaukurParticipantHellamenn hafa löngum haft þann sið að liggja á nákvæmum staðsetningum hella eins og ormar á gulli til að koma í veg fyrir umferð óvandaðra ferðalanga…
Það er hins vegar hellir sem þið gætuð föndrað við að síga í sem heitir Djúpihellir og er í Bláfjöllum, skammt vestan við aðalbílastæðið, það ætti ekki að fara framhjá ykkur, þar eru 2 göt, annað um 7 m djúpt en hitt um 15 m djúpt og bjóða þau bæði upp á fríhangandi sig, ef það er það sem þið eruð að leita eftir.
svo er að vandasig að stundasig…
Ætla samt að vona að Hardcore fari ekki í frústrasjón sinni að ráðast á einhver grey sem „stundasig“ þ.e.a.s. að sjálfs sé höndin hollust.
jh
25. ágúst, 2005 at 13:12 #49931SissiModeratorHardcore – er það þessi með mjúku fyllingunni?
25. ágúst, 2005 at 16:09 #499321704704009MeðlimurÚr því að allir eru farnir að tjásig um hellasig.
Hvað er betr’ en að stundasig?
í myrkri með allt niðrumsig.
Prófasig, tékkasig, vandasig
klárasig, gyrðasig – útskrifa sig.Spurning um að maður fari að láta athugasig.
Kv. Örlygursig.25. ágúst, 2005 at 20:39 #49933KarlParticipantÓnefndur hjálparsveitarmaður á Akureyri sló eftirminnilega í gegn á afmælishátíð Akureyrarbæjar um árið þegar siglínan hans skarst í sundur á þakbrún er hjálparsveitarmenn voru að sýna hátíðargestum hvernig björgunarsveitir bæru SIG að við SIG……
Það sýndi sig
þegar xxxx sýndi sig
Að til að sýna sig…
-þá þarf að æfa sig26. ágúst, 2005 at 11:19 #499342902725569MeðlimurÞetta er bara spurning um að finna góða sigdæld.
27. ágúst, 2005 at 09:29 #499352003793739MeðlimurEru menn alveg hættir að leita á bókasöfnum borgarinnar. Það er búið að gefa út helling af bókum og pistla um hella.
Ef ekkert finnst við það að googla þá gefst ,,Cocopuffs kynslóðin“ upp…
Kv
Halli28. ágúst, 2005 at 23:25 #499360702892889Meðlimurþað er til bók á bókasafni hafnarfjarðar þar sem eru teknir fyrir fullt af hellum og hvar er hægt að finna þá, man ekki alveg hvað hún heitir en konurnar þar vilja allt fyrir mann gera, mæli með að þú kíkir þangað
andri
29. ágúst, 2005 at 08:16 #49937Jón HaukurParticipantHraunhellar á íslandi, höf: Björn Hróarsson, gefið út ca. 1990. En þar eru engar staðsetningar aðrar en hraunið sem hellirinn er í.
jh
29. ágúst, 2005 at 08:38 #499380702892889MeðlimurAkkúrat sú bók
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.