- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
15. apríl, 2003 at 10:08 #45703ÓlafurParticipant
Gleðifréttir.
Eftir langa meðgöngu er ársritið er fætt og snepillinn er hinn glæsilegasti. Blaðið er ríkulega hlaðið myndum og greinum og er allt litprentað.
Blaðið fer í póst til þeirra sem greitt hafa árgjaldið í dag eða á morgun.
Nú er bara að halda kúrsinum, rétta blaðið af, og koma nýju blaði út hið fyrsta!
15. apríl, 2003 at 14:50 #47920Jón HaukurParticipantÁrsritið var sett í póst núna kl 1400 og lofuðu dömurnar á pósthúsinu því að blaðið kæmi til viðtakenda á morgun, nema ef vera kynni til Grímseyjar.
Það fóru hins vegar aðeins um 120 eintök út í þessari lotu. Það er frekar slappt þar sem að mikil meirihluti þeirra voru til styrktaraðila, það er að segja til áhugamanna um fjallamennsku sem starfa lítið sem ekkert innan klúbbsins en vilja gjarnan styðja starfsemina, sem er mjög gott mál. Annað er að það vantaði á listann ansi mörg nöfn sem láta iðulega sjá sig á mannamótum tengdum klúbbnum og tjá sig oft og iðulega hér á vefnum. Mín skoðun er að þetta er prinsipp mál fyrir alla fjallmenn sem taka sportið alvarlega að vera aðilar að samtökum eins og ísalp og borga árgjaldið…..
gleðilega páska
jh
15. apríl, 2003 at 15:46 #479210311783479MeðlimurÉg er hjartanlega sammála Jóni Hauki með að það er skylda okkar að hlúa að klúbbnum með því að vera félagar, árgjaldið er ekkert til að vera býsnast yfir.
16. apríl, 2003 at 11:09 #479221709703309MeðlimurVar í Skútuvoginum í gær og rakst á nýja ÍSALP ritið í allri sinni dýrð. Verð nú að viðurkenna að hingað til hef ég ekki áttað mig á því hversu gríðarlega mikið er af upplýsingum í Fréttapistlinum og hversu mikil vinna hlýtur að liggja í samantektinni yfir allar nýjar leiðir sem eru lagðar á árinu. Einnig að halda utan um þær upplýsingar um hvað félagar eru að gera um víðan völl. Leist vel á blaðið hlakka til að fá það í pósti og lesa það spjalda á milli. Sérstaklega var skemmtileg ein opnu „centerfold“ mynd af fyrrum stjórnarmeðlim, meira af svoleiðis.
Til hamingju ritnefnd þið hafið unnið ykkur inn leyfi til að fara norður í Hrafnsfjörð um Páskana.
Með kveðju,
Stefán Páll16. apríl, 2003 at 11:12 #479231709703309MeðlimurMissteig mig áðan á lyklaborðinu. Það átti að vera Hvalvatnsfjörður sem ritnefndin má fara í.
Góðar stundir,
Stebbi16. apríl, 2003 at 13:37 #479240704685149MeðlimurÁrsritið barst í morgun með mjólkurbílnum hingað norður fyrir heiðar. Stórglæsilegt rit.
Þegar ársritið er sent á ,,styrktaraðila“ fer það ekki líka á aðra klúbba og ,,félagskapa“ s.s. framhaldsskóla, ferðafélög og stærri Björgunarsveitir út um land allt. Þar sem hægt er að smala mannskap í klúbbinn. Hægt að senda með ársritinu C-gíróseðli og þá er mönnum frjálst að eiga blaðið og styrkja okkur um leið. Síðan er hægt að sjá hvaða félög borguðu og senda þeim aftur ári seinna eða hringja og spyrja. Það vita ekki allir að ISALP sé til því það er ekki sagt frá ÍSALP í Bændablaðinu eða álíka blöðum.
Auðvita má útfæra þessa markaðssetningu á annan hátt.
Ég bara spyr?
Kveðja
Jón Marinó16. apríl, 2003 at 15:10 #47925Jón HaukurParticipantEinhvern tíman á fyrri hluta tíunda áratugarins þegar ég vann fyrir mér sem siðapostuli á vegum framsóknarfélagsins landsbjargar þá var öllum björgunarsveitum sem ég heimsótti troðið í klúbbinn. Það var ánægjulegt að sjá á listanum í gær að margar af þessum sveitum eru ennþá áskrifendur. Reyndar vantaði björgunarsveitina á ólafsfirði og hef ég böbba grunaðan um að hafa skráð sveitina úr klúbbnum til að eiga fyrir flottara glíngri. Þrátt fyrir það er þetta takmarkaður fjöldi af björgunarsveitum sem kaupir blaðið og mætti gjarnan gera markaðsátak gagnvart þeim eins og bassi bendir réttilega á. Eins er mikilvægt að aðilar innan klúbbsins reki áróður gagnvart félögum sínum í björgunarsveitunum fyrir nauðsyn klúbbsins….
að eilífu ekki amen
16. apríl, 2003 at 17:30 #479262005774349MeðlimurRitnefnd á hrós skilið fyrir velunnið og óeigingjarnt starf við að koma þessu líka flotta blaði út.
Til hamingju ritnefnd.
Þið eigið inni kaffibolla hjá mér fyrir austan og jafnvel eitthvað úti einhverja góðveðurshelgina fyrir austan í sumar (en það verður víst nóg af þeim).Kveðja frá Hjalta R. el Monstruo Guðmundssyni.
16. apríl, 2003 at 18:29 #479271506774169MeðlimurJæja ísalparar. Til hamingju með ársritið. Þetta er mögnuð og skemmtileg lesning og mætti segja mér að hún kæmi mörgum brölturum í fíling til að gera eitthvað um helgina. En annars, ég verð að koma með smá leiðréttingu á bæklingnum. Á blaðsíðu 65 er mynd frá Vaðalfjöllum í Þorskafirði sem eru beint fyrir ofan Bjarkarlund. Það stendur nefnilega undir myndinni að þetta séu Reiphólsfjöll í Þorskafirði . Bara til að hafa staðreyndir á hreinu.
16. apríl, 2003 at 20:25 #479281704704009MeðlimurÓska öllum hlutaðeigandi til hamingju með ritið án þess að hafa séð það. Trúi bara vitnisburði hinna sem hafa gert það. Eins gott að drullast líka til að borga þetta árgjald.
Hefur annars enginn tjáð sig um Skessuhorn um síðustu helgi og óskað Ívari til lukku með Norðurfésið? Hann einfór fésið. Undirrituðum þykir það nú bara vel gert.
25. apríl, 2003 at 15:20 #47929AnonymousInactiveHvernig er það, Er Palli farinn að klifra með hvítan hjálm(sjá ársritið!!!!) Bara að stríða he he
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.