Ég vil þakka Jón Marínó og fél. fyrir frábærlega vel heppnaða hátíð sem að flestu fór fram í anda einkunnarorða Nashyrningsins: Léttleiki, liðleiki, sveigjanleiki. Nýsnævið í fjallinu í gær kom skemmtilega á óvart og setti punktinn yfir i-ið (þetta er tekið fram fyrir bjórbullurnar sem fréttist af í heita pottinum á Ak. og einnig á þjóðvegi 1).
Einna helst er álitamál hvort ekki megi einnig bjóða upp á flatböku með hangikjöti næsta ár, en ef mér skjöpplast ekki á sá réttur uppruna sinn og upphaf á Akureyri.
Við meðlimi TAT-hópsins hef ég þetta eitt að segja: Þið þetta unga fólk, sem aldrei hafið kynnst öðru en plastskóm og karvíng-skíðum, njótið sigursins meðan hann varir … eitt ár er fljótt að líða.
Kv. SM