Laumuklifarar í endurhæfingu, undirritaður og Haraldur Ingvarsson fóru í Nálaraugað í dag. Fínar aðstæður (mér skilst að það sé yfirleitt þunnur ís á köflum í leiðinni, það átti líka við í dag). Efst var undarlegur snjó/ís og smá hengja. Mjög skemmtileg leið.